Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Terta - Gestagangur í LHÍ

27. febrúar 2023

TERTA,þverfaglegt hönnunarteymi heldur fyrirlestur í arkitektúr- og hönnunardeild Listaháskólans miðvikudaginn 1. mars um hönnun og endurnýjun Elliðaárstöðvar. Fyrirlesturinn fer fram klukkan 12:15 í fyrirlestrarsal A, Þverholti 11.

Þverfaglega hönnunarteymið Terta hefur síðan árið 2019 unnið að hönnun og endurnýjun Elliðaárstöðvar sem nýs áfangastaðar með almenningsrými, gestastofu, veitingastað og fræðslu. Í fyrirlestrinum munu Brynhildur Pálsdóttir vöruhönnuður og Magnea Guðmundsdóttir arkitekt segja frá samstarfinu og hönnunarnálgun – hvernig saga staðarins, veiturnar og starfsemi Orkuveitunnar hafa veitt innblástur við hönnunina og leitt hana áfram.

Frá byrjun hönnunarferlisins er sérfræðiþekking og mismunandi sjónarhorn hvers fags fullnýtt sem skilar breiðari sýn á viðfangsefnið. Tillagan Með orkunni úr ánni er tertan bökuð bar sigur úr býtum í hugmyndasamkeppni um sögu- og tæknisýningu í Elliðaárdal sem Orkuveita Reykjavíkur stóð fyrir í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs árið 2019.

Rafstöðin í Elliðaárdal var vígð árið 1921 og lýsti leiðina til framtíðar. Rafmagnið og veiturnar sem fylgdu í kjölfarið umbyltu lífsgæðum borgarbúa og með þeim varð til þekking og hugvit sem samfélagið býr enn að í dag. Líkt og árnar voru áður virkjaðar verður nú lögð áhersla á að virkja fólk og hugvit í Elliðaárdal.

Terta samanstendur af Ármanni Agnarssyni, grafískum hönnuði, Brynhildi Pálsdóttur, vöruhönnuði, og Evu Huld Friðriksdóttur og Magneu Guðmundsdóttur, arkitektum á Teiknistofunni Stiku. Þau hafa öll starfað á fjölbreyttum vettvangi hvert á sínu sviði og unnið að margvíslegum sjálfstæðum verkefnum sem og samstarfsverkefnum. Meðal annars hafa þau komið að framleiðslu, bókahönnun, efnisrannsóknum, kennslu, sýningarhönnun, matarhönnun, mörkun, vöruþróun, hönnun á byggingum og borgarskipulagi. Þá hafa hönnuðir Tertu hlotið fjölmargar viðurkenningar og styrki.

Viðburður á Facebook

Ýttu hér

Tengt efni

  • Aðalfundur Arkitektafélags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 28. febrúar

  • Staðsetning nýs Regluheimilis er merkt með rauðu á korti.

    Vilt þú hanna nýtt kennileiti í Urriðaholti? Oddfellowreglan efnir til samkeppni um nýtt Regluheimili

  • DesignTalks 2023 - Odile Decq, arkitekt og borgarskipulagsfræðingur

Dagsetning
27. febrúar 2023
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Listaháskóli Íslands
  • Vöruhönnun
  • Arkitektúr
  • Grafísk hönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200