Þarfir, réttindi og aðkoma fólks að skipulagsmálum
Málstofa
Endurmenntun HÍ heldur málstofu fimmtudaginn 25. mars kl. 13:00-16:00.
Markmiðið með málstofunni er að varpa ljósi á hvernig skipulagsmál á Íslandi snerta ólíka hópa fólks.
Skipulagslög tryggja aðkomu almennings að ákvörðunum í skipulagsmálum og hefur samráð í skipulagsmálum aukist síðustu ár. En hafa allir sömu aðkomu að skipulagsferlinu og látið er í veðri vaka? Getur verið að einstaklingar með veikan málssvara, s.s. jaðarsettir hópar hafi ekki sömu aðkomu að málum?Sjáum við þess merki að litið hafi verið framhjá þörfum og réttindum fólks við gerð skipulags í gegnum tímans rás? Tekur skipulag tillit til öryggis og þarfa þess fólks sem nýtir sér sitt nánasta umhverfi? Er réttur fólks til að andmæla skipulagi í raun réttur til að andmæla réttindum annars fólks?
Markmiðið með þessari málstofu er að varpa ljósi á hvernig skipulagsmál á Íslandi snerta ólíka hópa fólks sem hafa oft ekki fengið rými til að koma að skipulagsferli. Spurt er hvort þörfum þessara hópa sé mætt í núverandi skipulagi. Einnig er markmiðið að vekja athygli á því hvernig skipulag gæti verið mannvænlegra ef litið væri til ólíkra þarfa fólks fyrr í skipulagsferlinu og jafnframt skapa gagnlega og fjölbreytta umræðu um málefnið.
fimmtudaginn 25. mars..
SNEMMSKRÁNING TIL OG MEÐ 15. MARS.
Málstofan er hjá Endurmenntun, Dunhaga 7 og fer einnig fram í rauntíma í fjarkennsluforritinu ZOOM.