Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Tillaga SP(R)INT STUDIO og Nissen Richards vinnur samkeppni um sýningu í nýrri gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri

17. október 2023

Niðurstöður hafa verið birtar í hönnunarsamkeppni um sýningu í nýrri gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri. Það var fransk-íslenska hönnunarfyrirtækið SP(R)INT STUDIO ásamt ensku Nissen Richards Studio sem bar sigur úr býtum en þrjár tillögur voru í lokasamkeppninni eftir forval hjá Ríkiskaupum, Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og Vatnajökulsþjóðgarði.

Teymin þrjú skiluðu öll inn framúrskarandi tillögum um hönnun á sýningu og lausnum fyrir gestastofuna í heild. Lokatillögurnar verða settar upp á Uppskeruhátíð Skaftárhrepps þann 19. október næstkomandi þegar boðið verður í kaffisamsæti í húsinu.

Hönnunarsamkeppnin var í tveimur þrepum þar sem þrjú teymi voru valin í forvali til að vinna að og leggja fram lokatillögur undir nafnleynd að hönnun og uppsetningu grunnsýningarinnar. Þrjár samkeppnir í þjóðgörðum voru auglýstar á Evrópska efnahagssvæðinu í apríl 2023 fyrir þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs á Hellissandi, gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri og gestastofu Umhverfisstofnunar og Vatnajökulsþjóðgarðs á Skútustöðum við Mývatn. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs var ráðgefandi aðili samkeppninnar en Ríkiskaup sáu um framkvæmd hennar. Tvær dómnefndir voru skipaðar, hvor fyrir sitt þrep keppninnar, af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og Vatnajökulsþjóðgarði. Af þeim þremur teymum sem valin voru í forvalinu fyrir Kirkjubæjarklaustur voru tvö íslensk og eitt erlent. 

Sýningunni í nýrri gestastofu á Kirkjubæjarklaustri er ætlað að höfða til breiðs hóps, jafnt  heimafólks sem innlendra og erlendra gesta. Sérstök áhersla verður á náttúrufar vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs sem nær frá Kirkjubæjarklaustri og norður yfir Lakagíga, Eldgjá og að Nýjadal. Einnig er horft sérstaklega til mannlífs og seiglu íbúa í gegnum margar stærstu náttúruhamfarir frá landnámi.

Aðstandendur keppninnar þakka öllum fyrir góða þátttöku og óska SP(R)INT STUDIO og Nissen Richards Studio til hamingju.

Tengt efni

  • Þrjár samkeppnir um sýningar í þjóðgörðum Íslands

  • Íslensk hönnun lýsir upp borgina í október

  • Pítsustund með Fléttu og Ýrúrarí tilnefnt sem verk ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2023

Dagsetning
17. október 2023
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Samkeppni
  • Arkitektúr
  • Innanhússarkitektúr
  • Sýningarhönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200