Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Tilnefningar til Íslenslu bókahönnunarverðlaunanna 2025

17. nóvember 2025

Tilnefningar til Íslensku bókahönnunarverðlaunana voru tilkynntar 15. nóvember síðastliðin á Bókahátíð í Hörpu. Í ár voru 6 bækur tilnefndar í hvorum flokki fyrir sig.

Bókakápur

Mzungu

Höfundur
Þórunn Rakel Gylfadóttir 
og Simon Okoth Aora

Útgáfa
Angústúra

Hönnuður
Studio Studio
(Arnar Freyr Guðmundsson 
og Birna Geirfinnsdóttir)

Kápa sem grípur strax athygli lesandans. Hönnunin skírskotar beint til efnis bókarinnar án þess að vera bókstafleg, allt frá brotalínu á forsíðu til saurblaða undir áhrifum afrískrar textíllistar. Ásetningur í hverju smáatriði.

Andrými

Höfundur
Eiríkur Jónsson

Útgáfa
Bjartur

Hönnuður
Börkur Arnarson

Einföld en áhrifarík og grípandi kápa þar sem samspil leturs og auðs rýmis skapa óvanalega myndbyggingu.

Syndafall

Höfundur
Yrsa Sigurðardóttir

Útgáfa
Veröld

Hönnuður
Ragnar Helgi Ólafsson

Kápan er formföst og talar inn í samræmt útlit sem hefur verið þróað yfir mörg ár. Hér er unnið með ímynd höfundar og væntingar lesandans þar sem nafn höfundar sést varla og myndefnið vísar óbeint til inntaks bókarinnar.

Hennar rödd

Höfundur
Elinóra Guðmundsdóttir, 
Chanel Björk Sturludóttir 
og Elínborg Kolbeinsdóttir

Útgáfa
Vía útgáfa

Hönnuður
Kolbeinn Jara Hamíðsson Moradi, Þorgeir K. Blöndal 
og Kaja Sigvalda

Ögrandi kápa þar sem ólíkir stílar og menningarheimar mætast í samhljómi sem kallast á við umfjöllunarefni bókarinnar. Áferð, litaval og bókband er úthugsað til að lyfta efninu upp og leika sér með væntingar lesanda.

Blaka

Höfundur
Rán Flygenring

Útgáfa
Angústúra

Hönnuður
Rán Flygenring

Kápa sem er grípandi í einfaldleika sínum þar sem viðfangsefnið horfir beint á lesandann. Lifandi vatnslitum og skærum sjálflýsandi lit er teflt saman í mynd sem endurspeglar höfundarverkið og bókina sem heild.

TÓM

Höfundur
Spessi

Útgáfa
Kind útgáfa

Hönnuður
Kakkalakki Studio, 
Fernanda Fajardo 
og João Linneu

Dularfull kápa þar sem ljósmyndabrotum er skeytt saman svo að úr verður sjálfstætt myndverk sem vekur forvitni lesanda. Áhrifamáttur myndarinnar er magnaður upp með vönduðu efnisvali og prentvinnslu.

Bókahönnun

Hennar rödd

Höfundur
Elinóra Guðmundsdóttir, 
Chanel Björk Sturludóttir 
og Elínborg Kolbeinsdóttir

Útgáfa
Vía útgáfa

Hönnuður
Kolbeinn Jara Hamíðsson Moradi, Þorgeir K. Blöndal 
og Kaja Sigvalda

Verk sem gerir efniviðnum hátt undir höfði svo að úr verður eigulegur gripur. Bókin er brotin upp á óvæntan máta og unnið með ólík leturkerfi og uppsetningu, og þannig skírskotað til umfjöllunarefnisins. Góð hrynjandi í umfangsmiklu verki þar sem reynir á margt í framsetningu upplýsinga.

Svarthol Tunglsins

Höfundur
Ritröð

Útgáfa
Tunglið forlag

Hönnuður
Ragnar Helgi Ólafsson

Bókaröð þar sem himingeimurinn liggur til grundvallar. Unnið er með svarthol á kjölum bókanna, sem og á innsíðum og saurblöðum. Röðin hefur sterkan heildarbrag en hver bók hefur þó sín sérkenni. Laglegt letur og fallegt pappírsval að innan sem utan gera bækurnar góðar aflestrar.

Blaka

Höfundur
Rán Flygenring

Útgáfa
Angústúra

Hönnuður
Rán Flygenring

Lesandinn sogast inn í heim bókarinnar frá fyrstu síðu. Handskrifað lesmál og úthugsað litaval hafa bein áhrif á lestrarupplifunina og kallast á við efni bókarinnar. Pappírinn passar teikningunum fullkomlega og grunnsýn höfundar er fylgt út í gegn þannig að úr verður sannfærandi og heilsteypt verk.

Jörð / Earth

Höfundur
Bryndís Jónsdóttir

Útgáfa
Angústúra

Hönnuður
Studio Studio
(Arnar Freyr Guðmundsson 
og Birna Geirfinnsdóttir)

Úthugsað og stílhreint verk þar sem efnisval, prentun og myndvinnsla er til fyrirmyndar. Kápa og innsíður endurspegla verkin sem eru til umfjöllunar og samræmi er milli allra hönnunarþátta. Óhefðbundin týpógrafía sem þó lætur lítið fyrir sér fara.

Sketching Bathing in Iceland

Höfundur
Rán Flygenring

Útgáfa
Angústúra

Hönnuður
Studio Studio
(Arnar Freyr Guðmundsson 
og Birna Geirfinnsdóttir)

Gáskafullt bókverk þar sem leikgleði ræður ferðinni. Marglaga kápa sem endurspeglar umfjöllunarefnið á óvæntan hátt. Verk sem sprengir upp hugmyndir um form og flokka. Vel farið með teikningar og myndvinnslu þannig að áferð og pappír skila sér.

TÓM

Höfundur
Spessi

Útgáfa
Kind útgáfa

Hönnuður
Kakkalakki Studio, 
Fernanda Fajardo 
og João Linneu

Myndir frá tilnefningar athöfninni

Framúrskarandi bókverk þar sem hvert smáatriði er úthugsað. Prentun, pappírsval og myndvinnsla draga myndir bókarinnar fram og svartur saumurinn bindur efnið og bókverkið í órofa heild.

Dagsetning
17. nóvember 2025
Höfundur
Anton Jónas Illugason

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • FÍT
  • Grein
  • Greinar
  • Grafísk hönnun
  • fréttir
  • GREINAR
  • Fréttir
  • Grafísk hönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200