Nýr umræðuvettvangur á Facebook fyrir félagsmenn AÍ
Til að efla og auka samtal milli félagsmanna AÍ hefur verið opnuð facebook síðan, Arkitektafélag Íslands-Umræðuvettvangur. Hingað til hefur ekki verið opin vettvangur fyrir félagsmenn til að koma sínum skoðunum og hugmyndum almennilega á framfæri. Félagsmenn hafa átt í samskiptum sín á milli á facebook síðunni, Íslenskir arkitektar, sem er gott en sú síða er opin síða og ekki á vegum Arkitektafélags Íslands. Við hvetjum alla félagsmenn AÍ að sækja um aðgang að þessari síðu og eiga í uppbyggilegri og faglegri umræðu um félagið, innra starf og ytra starf, félagsmönnum og stéttinni til bóta.