Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Útskriftarsýning myndlistardeildar og hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskólans opnar á Kjarvalsstöðum

2. maí 2019

Laugardaginn 4. maí næst komandi klukkan 15:00 opnar BA Útskriftarsýning myndlistardeildar og hönnunar- og arkitektúrdeildar Þetta hefur aldrei sést áður á Kjarvalsstöðum

Á sýningunni sýna útskriftarnemendur í myndlist, vöruhönnun, fatahönnun, grafískri hönnun og arkitektúr verk sín. Sýningin sem stendur stendur til 12. maí  verður uppfull af fjölbreyttum og áhugaverðum verkum upprennandi listamanna, hönnuða og hugsuða. Aðgangur á sýninguna er öllum opinn og ókeypis.

Sýningarstjórar sýningarinnar eru Birta Fróðadóttir og Hildigunnur Birgisdóttir en þær segja viðfangsefni útskriftarsýningar LHÍ í ár gífurlega víðfeðm. Þar má m.a. finna verk sem fjalla um „hegðunarmynstur katta, Sigmund Davíð í paradís, tyggjóklessur, súrsun, súrnun sjávar, yfirgefin hús, bjór, unga og efnilega fjárfestar, veðrið, brjálaða kona, Mjallhvít í kröppum dansi, nótnaskrift, stálslegna fornmuni, fuglsfjaðrir, sjálfsbjargarviðleitni, melgresi, garður ömmu þinnar,“ og spyrja í framhaldi, þú hefur mögulega séð þetta áður? Athyglisverður áhorfandi, tákn með tali, tálkvendi, líkvökur í Litháen, rafmagn, lakkrís og/eða rafmagnssnúrur, jafnvægi, tilbúinn hrákadallur, þinn eigin töfraljómi, eftirstríðsár Póllands, H&M plastpoki, loftræstikerfi, rennandi blautur sófi, afsal karlmennskunnar, mælieiningar, jarðbundinn leir, hákarlamaður, á leið til úrsmiðs.“

Meðal útskriftarnema er Íris Indriðadóttir nemandi í vöruhönnun, verkefni hennar „Í tygjum við tyggjó“ skoðar tyggigúmmíið sem við þekkjum öll. Tyggigúmmí er hversdagsleg neysluvara sem víða má nálgast. Þessi smáa vara þykir sjálfsagður hlutur í samfélaginu en innihald hennar er flestum hulið. Tyggjó inniheldur rúmlega 30.000 mismunandi efni og uppistaða þess eru plastefni. Við tyggjum tyggjó í nokkrar mínútur en að baki liggur langt framleiðsluferli og eftir neyslu okkar bíður þess enn lengra framhaldslíf sem óhreinindi eða rusl. Samtals tyggjum við mannfólkið um hundrað þúsund tonn af tyggjói á ári. En hvar er allt tyggjóið sem tuggið hefur verið og hvar á það að vera? Í tyggjóverkefninu leitar Íris að hinum rétta lokastað fyrir þessa skrýtnu og skemmtilegu vöru eftir neyslu.

Frá verki Írisar sem verður til sýnis á Kjarvalsstöðum.

Á meðan sýningunni stendur verður boðið upp á sýningastjóraspjall við báða sýningastjóra, viðburði sem tengjast útskriftaverkefnum nemenda og lokun þar sem nemendur verða á staðnum til að tala um verk sín. Á heimasíðu Listaháskólans hér er hægt að fræðast betur um þær tímasetningar.

Tengt efni

  • Áhugaverð sumarnámskeið fyrir hönnuði og arkitekta hjá LHÍ

  • „Hugtakið sjálfbærni er flókið og viðamikið“

  • „Við getum hjálpað fólki að finna hvað er í raun og veru vandamálið sem við ætlum að leysa“

Dagsetning
2. maí 2019

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Listaháskóli Íslands
  • Nemendur
  • Útskriftarsýning

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200