Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Vasinn í öllum sínum birtingarmyndum á nýrri samsýningu HAKK Gallery

18. ágúst 2026

Samsýningin Vasar opnar í HAKK Gallery fimmtudaginn 20. ágúst kl. 17. Á sýningunni takast íslenskir og erlendir hönnuðir og listamenn á við vasann sem viðfangsefni, með frjálsri nálgun að efni, aðferð og notagildi. Sýningin er sú þriðja í röð fyrirmælasýninga HAKK Gallery, þar sem ólíkum hópi hönnuða, handverksfólks og listamanna er boðið að túlka sameiginlegt viðfangsefni.

Fyrri sýningar í röðinni hafa hverfst um snagann og kertastjakann, en að þessu sinni er sjónum beint að vasanum og þeim fjölmörgu hlutverkum sem hann hefur gegnt í gegnum tíðina. Á sýningunni er leitast við að draga fram ólíkar birtingarmyndir í gegnum fjölbreytt efnisval, aðferðir og form.

„Með þessum sýningum erum við að skapa vettvang fyrir samtal og tengingar, fá ólíka hönnuði að borðinu og varpa ljósi á það sem er að gerast,“ segir Brynhildur Pálsdóttir, vöruhönnuður og annar stofnenda HAKK Gallery.

Brynhildur og Gunnar M. Pétursson, listamaður og meðstofnandi HAKK, leggja jafnframt áherslu á að tengja íslenskt hönnunar- og handverkssenuna við það sem er að gerast utan landsteinanna. Þau bjóða því reglulega erlendum hönnuðum og listamönnum til þátttöku samhliða íslenskum kollegum þeirra.

„Það skiptir mjög miklu máli að við fáum hingað ferska vinda frá meginlandinu og sjáum íslenska hönnun í samhengi við það sem er að gerast annars staðar. Einnig sjáum við þessar sýningar sem mikilvægt innleg í það að skapa lifandi og fjölbreyttan vettvang fyrir hönnun og handverk á Íslandi, þar sem að tækifæri fyrir hönnuði til að sýna í faglegu umhverfi eru af skornum skammti því miður,“ segir Brynhildur.

Ólíkar kynslóðir, efni og aðferðir

Við val þátttakenda í Vösum var lögð áhersla á fjölbreytni, bæði hvað varðar reynslu, bakgrunn, efnivið og vinnuaðferðir. Þar mætast ungir og reyndari höfundar auk þess sem íslenskir þátttakendur sýna verk sín við hlið hönnuða og listamanna frá Finnlandi, Ítalíu, Danmörku, Svíþjóð og Þýskalandi.

Þátttakendur í sýningunni eru Anna Diljá Sigurðardóttir, Anna Wallenius, Davide Ronco, Hanna Dís Whitehead, Helgi Þórsson, Kajsa Willner, Katla Rúnarsdóttir, Kolbrún Kjarval, Max Greiner, Troels Flensted og Þuríður Rós Sigurþórsdóttir.

Að sögn Brynhildar hefur samsetning sýningarinnar gengið vel og ólík verk þegar farið að skapa samtal sín á milli í sýningarrýminu.

„Það hefur verið mjög gaman að fá vasa frá öllum þessum frábæru hönnuðum og listamönnum og sjá þá koma saman í rýminu. Það myndast skemmtileg samtöl og tengingar sem við hlökkum til að deila með gestum,“ segir hún.

Vasar opnar í HAKK Gallery, Óðinsgötu 1 í Reykjavík, fimmtudaginn 20. ágúst kl. 17.

HAKK Gallery hlýtur stuðning frá Reykjavíkurborg, Hönnunarsjóði og Handverki og hönnun.

Dagsetning
18. ágúst 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
  • HÖNNUNARMIÐSTÖÐ
  • GREINAR
  • Viðtal
  • HAKK Gallerý

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200