Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Vegvísir að mótun rannsóknarumhverfis mannvirkjagerðar kynntur

13. mars 2024

Í gær kom út hjá HMS Vegvísir að mótun rannsóknarumhverfis mannvirkjagerðar en HMS hefur unnið að honum í rúmt ár. Niðurstöðurnar úr vegvísinum byggja meðal annars á samtölum við hátt í 70 hagaðila, aðgerð 9 í hönnunarstefnu og aðgerð 2.9. í hvítbók húsnæðisstefnu.

Vegvísirinn byggir einnig á samráði við m.a. Skipulagsstofnun, Tæknisetur, Samtök iðnaðarins, Verkfræðingafélag Íslands, Arkitektafélag Íslands, Hönnunarmiðstöð, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands.

Hægt er að nálgast vegvísinn með því að smella á þennan hlekk.

Í vegvísinum er umgjörð rannsóknarumhverfis mannvirkjagerðar skoðað út frá þremur þáttum: Framkvæmd rannsókna, miðlun og hagnýtingu rannsóknarniðurstaðna, og prófanir á byggingarvörum og eftirlit með framleiðslustýringu.

Fjöldi úrbótatækifæra innan hvers þessara þátta var greindur og 16 aðgerðir skilgreindar til að mæta þeim á næstu 12-24 mánuðum, bæði til að efla þekkingu í mannvirkjagerð og svo unnt sé að taka ákvarðanir um rannsóknarumhverfið til framtíðar.

Ger­ir stjórn­völd­um kleift að taka vel und­ir­byggð­ar ákvarð­an­ir

Í kynningu á vegvísinum sagði Sigurður Ingi að mannvirkjageirinn stæði frammi fyrir margvíslegum áskorunum, líkt og minni losun gróðurhúsalofttegunda, aukna veðuráraun vegna loftslagsbreytinga og myglu í byggingum. Til að geta brugðist við þeim væri þörf á öflugum rannsóknum á sviði mannvirkjagerðar, auk þess sem þörf verði á að tryggja utanumhald, miðlun og hagnýtingu rannsóknarniðurstaða.

„Öflugar og samfelldar rannsóknir og nýsköpunarstarfsemi í mannvirkjaiðnaði leiða í ljós nýjar lausnir, stuðla að aukinni þekkingu, faglegri vinnubrögðum, vistvænni mannvirkjum með lengri líftíma og lægri byggingar- og viðhaldskostnaði,“ sagði Sigurður Ingi á fundinum í dag. Jafnframt sagði ráðherrann að þær aðgerðir sem skilgreindar eru í vegvísinum muni gera stjórnvöldum kleift að taka vel undirbyggðar ákvarðanir um rannsóknarumhverfi mannvirkjagerðar til framtíðar.

Frétt HMS

Tengt efni

  • Með sjálfbærni að lífsstarfi - Málþing um Jón Kristinsson arkitekt

  • Rán Flygenring á DesignTalks 2024

Dagsetning
13. mars 2024
Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200