Vilt þú hafa áhrif á þróun samræmdra verklýsinga á Íslandi?
Undirbúningshópur Verklýsinga Íslands,
HMS/Burður, SI, Vegagerðin, FSRE og Verkplan boðar til vinnustofu þar sem markmiðið er að móta næstu skref í uppbyggingu sameiginlegs verklýsingagrunns fyrir íslenskan mannvirkjaiðnað. Í nágrannalöndum hafa slík kerfi verið lykilverkfæri í áratugi og stuðlað að aukinni skilvirkni, gæðum og betri nýtingu fjármuna.
Hér á landi hefur verkefnið nú fengið aukinn kraft m.a. með áherslum í Vegvísi HMS um bætt rannsóknarumhverfi og einnig eru samræmdar verklýsingar aðgerð í aðgerðaráætlun Burðar samstarfsvettvangs mannvirkjarannsókna og prófana. Núna er því kjörið tækifæri til að taka næstu skref.
Til umræðu er að stofna sjálfstæð félagasamtök, Verklýsingar Íslands, sem myndu þróa og hýsa samræmdar grunnverklýsingar, efla samstarf og miðlun þekkingar og styðja við gæði og hagkvæmni í framkvæmdum.
Til að þetta mikilvæga verkefni nái árangri þarf breiða aðkomu fagfólks, hagaðila og þeirra sem vilja leggja sitt að mörkum. Þitt framlag getur skipt sköpum.
Staðsetning: HMS
Tímasetning: 8. apríl kl. 15:00–17:00
Dagskrá:
- Stutt kynning á stöðu verkefnisins
- Vinnustofa um áherslur og næstu skref
- Léttar veitingar og gott samtal
Skráning fer fram hér