Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Viltu taka þátt í að móta framtíð hönnunar og arkitektúrs á Íslandi?

25. apríl 2025

Auglýst er eftir framboðum frá öflugum fulltrúum fagfólks úr baklandi Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs til setu í stjórnum. Um er að ræða einn fulltrúa í hverja stjórn: Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, HönnunarMars, Hönnunarsjóð, Hönnunarverðlaun og Hönnunarlaun. Auk þess er leitað að varamönnum í stjórn Hönnunarsjóðs, dómnefnd Hönnunarverðlauna og Hönnunarlauna.

Framboð skulu að berast fyrir 22. maí á info@honnunarmidstod.is, þar sem þarf að koma skýrt fram í hvaða stjórn verið er að bjóða sig fram í. Framboði skal fylgja stutt ferilskrá og kynning. Vinsamlegast athugið að einungis félagsmenn fagfélaga Miðstöðvarinnar geta boðið sig fram. Skráning í fagfélög fer fram hér. 

Kosning fer fram á aðalfund Miðstöðvarinnar þann 3. júní í Grósku en fulltrúar níu hluthafa kjósa fulltrúa í stjórnir.*

Stjórn í Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs

Stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs hefur yfirumsjón með rekstri miðstöðvarinnar og allra verkefna hennar. Fimm fulltrúar sitja í stjórn, skipaðir til þriggja ára, þrír fulltrúar hluthafanna níu sem kosnir eru á aðalfundi og tveir fulltrúar atvinnulífs.

Stjórn HönnunarMars 

Stjórn HönnunarMars vinnur að því að efla og styrkja hátíðina. Í stjórn HönnunarMars sitja fimm fulltrúar, þrír fulltrúar hluthafanna níu sem kosnir eru á aðalfundi Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og tveir fulltrúar atvinnulífs.

Stjórn í Hönnunarsjóðs

Stjórn hönnunarsjóðs metur styrkhæfi umsókna og ákveður afgreiðslu þeirra. Í stjórn Hönnunarsjóðs sitja fimm fulltrúar skipaðir til þriggja ára í senn, þrír eru skipaðir af stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Tveir eru skipaðir af menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneyti og annar þeirra er jafnframt formaður stjórnar.

Dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands

Dómnefnd ber ábyrgð á tilnefningum og vali á sigurvegurum Hönnunarverðlauna Íslands. Dómnefnd er skipuð átta fagmönnum, þremur skipuðum af stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, einum skipuðum af Hönnunarsafni, sem jafnframt er formaður, fulltrúa frá Listaháskóla Íslands, einum utanaðkomandi, einum erlendum fulltrúa auk fulltrúa frá Samtökum iðnaðarins.

Hönnunarlaun

Stjórn Miðstöðvarinnar tilnefnir þrjá fulltrúa og þrjá varafulltrúa í úthlutunarnefnd hönnunarlauna, hver fulltrúi situr í þrjú ár þannig að ávallt er einn nýr tilnefndur á ári.

Um stjórnir

Fulltrúi sem tekur sæti í stjórn, ráði, nefnd eða vinnuhópi fyrir hönd Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs situr fyrir hönd allra faghópa og þarf að hafa góða og yfirgripsmikla þekkingu á greinum hönnunar og arkitektúrs, vinna faglega og sýna hlutleysi. Unnið er á breiðu sviði íslenskrar hönnunar og arkitektúrs og verkefnin sem unnið er að þurfa að þjóna mörgum.

Gæta skal að jafnvægi á milli greina, kynja og aldurs við val á fulltrúum í stjórnir, ráð og nefndir. 

Í stjórnum og nefndum er almennt miðað við þrjú ár en mögulegt er að gefa kost á setu í tvö tímabil eða sex ár, hófleg þóknun er greidd fyrir setu í stjórn. Hér má kynna sér stjórnir https://www.honnunarmidstod.is/um-honnunarmidstod/stjornir og hér má kynna sér starfssemi og hlutverk https://www.honnunarmidstod.is/um-honnunarmidstod/starfsemi-og-hlutverk.

*Kosning er leynileg og gerð í eins mörgum umferðum og þarf til að tryggja afgerandi meirihluta á bak við hvern kjörinn fulltrúa. Hvert félag hefur eitt atkvæði sem fulltrúi félagsins í hluthafaráði fer með eða staðfestur fulltrúi hans.

Tengt efni

  • Metnaðar­full mark­mið og stórir sigrar

  • Frá vinstri: Helga Ólafsdóttir framkvæmdastjóri HönnunarMars, Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra, Eyjólfur Pálsson stofnandi Epal og Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Ljósmyndari: Sunna Ben.

    Ráðherra heiðrar Eyjólf Pálsson á merkum tímamótum

  • Hugverkavernd fyrir hönnuði

Dagsetning
25. apríl 2025
Höfundur
Klara Rún Ragnarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200