Viltu taka þátt í að móta framtíð hönnunar og arkitektúrs á Íslandi?

Auglýst eftir framboðum frá öflugum fulltrúum fagfólks úr baklandi Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs til setu í ólíkum stjórnum á vegum miðstöðvarinnar.
Um er að ræða fulltrúa og varamenn í þessar stjórnir:
HönnunarMars, einn fulltrúi - ekki komið á hreint
Hönnunarsjóður, einn fulltrúi og 3 varamenn úr ólíkum faghópum.
Hönnunarverðlaun einn fulltrúi og 3 varamenn úr ólíkum faghópum.
Hönnunarlaun einn fulltrúi og einn varamaður.
Stjórn Myndstefs einn fulltrúi og einn varamaður í stjórn.
Kosning fer fram á aðalfundi Miðstöðvarinnar þann 29. apríl í Miðstöð hönnunar og arkitktúrs í Grósku en fulltrúar níu hluthafa kjósa fulltrúa í stjórnir.*
Framboð skulu að berast fyrir 16. apríl á umsokn@honnunarmidstod.is, þar þarf að koma skýrt fram í hvaða stjórn verið er að bjóða sig fram í. Framboði skal fylgja stutt ferilskrá og kynning. Vinsamlegast athugið að einungis félagsmenn fagfélaga Miðstöðvarinnar geta boðið sig fram. Skráning í fagfélög fer fram hér.

Stjórn HönnunarMars
Stjórn HönnunarMars vinnur að því að efla og styrkja hátíðina. Í stjórn HönnunarMars sitja fimm fulltrúar, þrír fulltrúar hluthafanna níu sem kosnir eru á aðalfundi Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og tveir fulltrúar atvinnulífs.
Stjórn í Hönnunarsjóðs
Stjórn hönnunarsjóðs metur styrkhæfi umsókna og ákveður afgreiðslu þeirra. Í stjórn Hönnunarsjóðs sitja fimm fulltrúar skipaðir til þriggja ára í senn, þrír eru skipaðir af stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Tveir eru skipaðir af menningar-, nysköpunar og háskólaráðuneyti og annar þeirra er jafnframt formaður stjórnar. Sjá hér.
Dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands
Dómnefnd ber ábyrgð á tilnefningum og vali á sigurvegurum Hönnunarverðlauna Íslands. Dómnefnd er skipuð átta fagmönnum, þremur skipuðum af stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, einum skipuðum af Hönnunarsafni, sem jafnframt er formaður, fulltrúa frá Listaháskóla Íslands, einum utanaðkomandi, einum erlendum fulltrúa.
Hönnunarlaun
Stjórn Miðstöðvarinnar tilnefnir þrjá fulltrúa og þrjá varafulltrúa í stjórn hönnunarlauna, hver fulltrúi situr í þrjú ár þannig að ávallt er einn nýr tilnefndur á ári.
Um stjórnir MH&A
Fulltrúi sem tekur sæti í stjórn, ráði, nefnd eða vinnuhópi fyrir hönd Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs situr fyrir hönd allra faghópa og þarf að hafa góða og yfirgripsmikla þekkingu á greinum hönnunar og arkitektúrs, vinna faglega og sýna hlutleysi. Unnið er á breiðu sviði íslenskrar hönnunar og arkitektúrs og verkefnin sem unnið er að þurfa að þjóna mörgum.
Þegar kosið er í stjórnir, ráð og nefndir þarf að gæta að jafnvægi á milli greina, kynja og aldurs við val á fulltrúum.
Í stjórnum og nefndum er almennt miðað við þrjú ár en mögulegt er að gefa kost á setu í tvö tímabil eða sex ár, hófleg þóknun er greidd fyrir setu í stjórn.
Hér má kynna sér starfssemi og hlutverk
*Kosning er leynileg og gerð í eins mörgum umferðum og þarf til að tryggja afgerandi meirihluta á bak við hvern kjörinn fulltrúa. Hvert félag hefur eitt atkvæði sem fulltrúi félagsins í hluthafaráði fer með eða staðfestur fulltrúi hans.