Yfirlýsing Arkitektafélags Íslands um skapandi vinnurými í Reykjavík

Arkitektafélag Íslands lýsir yfir áhyggjum af uppsögnum Reykjavíkurborgar á leigusamningum við listafólk og skapandi starfsemi og skorar á borgaryfirvöld að endurskoða ákvarðanirnar í samráði við leigjendur.
Í gömlu Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi hefur byggst upp öflugt samfélag arkitekta, listafólks, hönnuða og frumkvöðla. Þar hafa orðið til rannsóknir og nýsköpun á sviði byggingarlistar, byggingarefna og endurnýtingar. Á svæðinu er einnig starfrækt Slökkvistöðin, eitt af fáum sýningarrýmum landsins sem helga sig byggingarlist og manngerðu umhverfi og eina slíka sýningarrýmið í Grafarvogi. Aðstaðan og samstarfið sem þar hefur þróast eru forsenda margra þessara verkefna, sem hafa meðal annars hlotið opinbera styrki.
Verðmæti slíkra rýma felast í húsunum, starfseminni og samfélaginu sem þau hýsa. Við ákvarðanir um framtíð þeirra þarf að taka tillit til byggingararfs, umhverfisáhrifa ólíkra framtíðarsviðsmynda og þeirrar vinnu og fjárfestingar sem leigjendur hafa lagt í aðstöðuna.
Arkitektafélag Íslands skorar á Reykjavíkurborg að:
- Endurskoða uppsagnirnar í samráði við leigjendur og kanna möguleika á úrbótum sem tryggja fullnægjandi brunavarnir og áframhaldandi starfsemi.
- Meta varðveislu og endurnýtingu bygginganna heildstætt, með tilliti til byggingararfs, umhverfisáhrifa, samfélagslegs ávinnings og fjárfestingar leigjenda.
- Tryggja viðeigandi aðstöðu á viðráðanlegu verði þar sem flutningur er óhjákvæmilegur og leitast við að halda saman þeim skapandi samfélögum sem hafa byggst upp.
- Setja fram langtímaáætlun um skapandi vinnurými í borginni, með öruggri aðstöðu og stöðugleika sem gerir fólki kleift að þróa starfsemi sína.
Á reglulegum fundum með borgarstjóra hafa AÍ og BÍL ítrekað áréttað mikilvægi þess að áform um skapandi hverfi í Gufunesi þurfi að byggja á þeim verðmætum sem þegar eru til staðar og því frumkvöðlastarfi sem átt hefur sér stað um árabil. AÍ skorar á Reykjavíkurborg að standa við áðurgefin fyrirheit um að frumkvöðlar fái að njóta afrakstur erfiðis síns og verði ekki hraknir burt eftir að hafa lagt sitt af mörkum til þeirrar skapandi ímyndar sem svæðinu er ætlað að hafa.