Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

Löggilding

    Starfsheitið landslagsarkitekt er löggilt starfsheiti hér á landi skv. lögum um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni-og hönnunargreinum, nr. 8/1996, með síðari breytingum.

    Atvinnuvegaráðuneytið veitir leyfi um starfsheiti. Rafrænt umsóknareyðublað má finna á þjónustuvef ráðuneytisins eftir innskráningu með rafrænum skilríkjum eða veflykli : eyðublað. Prófskírteini þarf að fylgja með.

    Meðferð umsóknar: Atvinnuvegaráðuneytið sendir umsókn og prófskírteini til umsagnar FÍLA. Stjórn félagsins fer yfir umsóknir og menntanefnd félagsins er stjórn til aðstoðar um inntöku nýrra félaga og  leyfisveitinga vegna starfsheitis. Ef umsögn FÍLA er jákvæð er hún send ráðuneytinu. Atvinnuvegaráðuneytið útbýr leyfisbréf og umsækjanda er tilkynnt að leyfisbréfið sé til afhendingar í ráðuneyti gegn greiðslu.

    Fullgildir félagsmenn geta einir sett skammstöfunina FÍLA fyrir aftan starfsheitið landslagsarkitekt.

    © Félag íslenskra landslagsarkitekta  –  ritari@fila.is

    Listi yfir alla sem hafa leyfi til að nota starfsheitið landslagsarkitekt

    Fagaðilar í mannvirkjagerð

    Þeir sem eru með meistaragráðu í námi tengdu mannvirkjahönnun, eða B.Sc. í rafiðnfræði, byggingarfræði eða tæknifræði, og uppfyllir kröfu um starfsreynslu geta sótt um löggildingu hönnuða á Mínum síðum HMS að undanförnu námskeiði í löggildingu mannvirkjahönnuða hjá Iðunni. Löggildir hönnuður hafa réttindi til að skila teikningum inn til byggingarfulltrúa auk þess að birtast á lista yfir löggilta hönnuði.

    Listi yfir löggilta mannvirkjahönnuði í landslagsarkitektúr

    Listi af skólum viðurkenndir af IFLA Europe

    Uppfærður júní 2024 - ath. fyrirvara, hafiði samband við ritari@fila.is fyrir tæmandi lista.

    pdf

    Hvað gera landslagsarkitektar?

    Eftirfarandi texti er byggður á skilgreiningu sem ISCO/08 birti um starfsgreinina 7. júlí 2020 og var unnin af alþjóðasamtökum Landslagsarkitekta IFLA

    Landslagsarkitektar skipuleggja, hanna og móta náttúrulegt og byggt umhverfi og beita fagurfræðilegum og vísindalegum lögmálum til að styðja við vistvæna sjálfbærni, gæði og heilsu landslags, uppsafnaða þekkingu, arfleifð, menningu og réttláta landnýtingu. Með því að leiða og samræma önnur þekkingarsvið, takast landslagsarkitektar á við samspil náttúrulegra og menningarlegra vistkerfa, svo sem með aðlögun og mildandi aðgerðum í tengslum við loftslagsbreytingar og stöðugleika vistkerfa, auk félagshagfræðilegra úrbóta og aðgerða á heilsu- og velferðasviði sem miðast að því að búa til staði þar sem búið er að gera ráð fyrir félagslegri og efnahagslegri velsæld.

    Hlutverk landslagsarkItekta eru meðal annars:

    • Að þróa og móta landslagið með því að framkvæma aðgerðir og undirbúa og hrinda í framkvæmd verkefnum til verndar minjum, varðveislu náttúru- og menningarlandslags, endurreisn á illa förnu landslagi og nýsköpun með ferlum sem samanstanda af hönnun, áætlanagerð, stjórnun og viðhaldi.
    • Að stunda rannsóknir og greiningar til að þróa sjálfbæra landslagshönnun, bætta skipulags- og stjórnunarhætti, kenningar, aðferðir og þróunaráætlanir til að stuðla að grænum innviðum, sjálfbæra stjórnun á náttúrulegu, landbúnaðar-, dreifbýlis- og borgarlandslagi og sjálfbæra notkun og beitingu alþjóðlegra umhverfisauðlinda.
    • Að framkvæma hagkvæmniathuganir og áhrifamat til að meta áhrif þróunar á vistfræði, umhverfiseiginleika, menningarverðmæti og samfélagsheilsu og heilnæmi landslaga.
    • Söfnun og skjalfesting gagna í gegnum staðargreiningar, þar með talið mat á staðbundnum hefðum, lögun lands, jarðvegi, gróður, vatnafræði, sjónræna eiginleika og manngerða og -stýrða eiginleika.
    • Undirbúningur landslagskjala, þar með taldar teikningar, forskriftir, áætlanir og samningsgögn og útboð fyrir viðskiptavini.
    • Umsjón með stafrænni tækni og framsetningu landkerfa og kynningum fyrir viðskiptavini og/eða samfélagið á verkefnum í tengslum við umhverfi og landslag.
    • Hvetja til almennrar þátttöku grenndarsamfélaga, yfirvalda og hagsmunaaðila við að móta ákvarðanatöku í tengslum við landslagsmál.
    • Miðla sérfræðiþekkingu og hagsmunagæslu um landslagsmál við að leysa ágreiningsmál, fyrir dómstóla, samkvæmt umboði, í keppnum, í fjölmiðlum og vegna almannatengsla.
    Skilgreiningin fyrir alþjóðlegu starfaflokkunina (ISCO)

    Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    Gróska, Bjargargata 1
    102 Reykjavik

    info@honnunarmidstod.is

    • Facebook
    • Instagram
    • Vimeo
    • Pinterest
    © Hönnunarmiðstöð 2026.

    Sími 771 2200