Inntökuskilyrði

Inntaka nýrra félaga í Leirlistafélag Íslands er háð inntökureglum SÍM

Umsóknir skulu vera vandaðar.

Til að hafa rétt til inngöngu í Samband íslenskra myndlistarmanna þarf umsækjandi að hafa lokið háskólaprófi í myndlist frá viðurkenndum listaháskóla eða aðra sambærilega menntun samkvæmt yfirlýsingu viðkomandi skóla.

Að öðrum kosti þarf umsækjandi að uppfylla fjögur af neðangreindum skilyrðum.

  • Hafa aðra menntun í myndlist (t.d. nám á framhaldsskólastigi, námskeið, einkatíma eða annað) staðfest með yfirlýsingu viðkomandi kennara/ skóla.
  • Hafa haldið eina eða fleiri einkasýningar í viðurkenndum sýningarstöðum. Staðfesting fylgi.
  • Hafa tekið þátt í alþjóðlegri sýningu, samsýningu styrktri af opinberum aðilum eða ekki færri en fimm samsýningum öðrum en að ofan greinir. Staðfesting fylgi.
  • Hafa verið falið af dómnefnd, að vinna að listskreytingu á opinberum vettvangi. Staðfesting fylgi.
  • Eiga minnst eitt verk í opinberri eigu, keypt af viðkomandi safnráði eða matsnefnd. Staðfesting fylgi.
  • Hafa hlotið opinberan styrk eða starfslaun. Staðfesting fylgi.

Sá sem óskar inngöngu í félagið, skal senda stjórn félagsins skriflega umsókn með upplýsingum um nám og starfsferil.

Umsókn skal send á leirlistafelagislands@gmail.com