Aðalfundur AÍ - áminning & frekari upplýsingar

Minnum á aðalfund Arkitektafélags Íslands á morgun, 12. mars í Fenjamýri, Grósku, kl. 17. Fundinum verður streymt fyrir þau sem komast ekki á staðinn, hlekk á fundinn má finna hér.
Á fundinum fara fram hefðbundin aðalfundarstörf, sbr. 7. og 8. grein laga Arkitektafélags Íslands. Ársreikning AÍ 2025 má nálgast hér.
Að venju verður kosning í nefndir félagsins. Áhugasöm um að bjóða sig fram í stjórn eða nefndir á vegum félagsins sendi tölvupóst á ai@ai.is.
Listi yfir aðila í framboði til stjórnar- og nefndarsetu er eftirfarandi:
Stjórn AÍ
Helga Guðrún Vilmundardóttir – formaður - til endurkjörs
Sigríður Maack – gjaldkeri - til endurkjörs
Jóhanna Höeg Sigurðardóttir – ritari - til endurkjörs
Skoðunarmenn ársreikninga
Halldóra Vífilsdóttir - til endurkjörs
Sigríður Magnúsdóttir- til endurkjörs
Samkeppnisnefnd
Björn Guðbrandsson - til endurkjörs
Falk Krüger - til endurkjörs
Hildur Gunnlaugsdóttir - til endurkjörs
Menntamálanefnd (2 sæti laus)
Bryndís Alfreðsdóttir - til endurkjörs
Laganefnd (3 sæti laus)
Framþróunarnefnd
Anna Karlsdóttir - til endurkjörs
Kristján Örn Kjartansson - til endurkjörs
Ólafur Ólason - til endurkjörs
Sigrún Guðný Halldórsdóttir
Siðanefnd
Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir - til endurkjörs
Jóhannes Þórðarson - til endurkjörs
Sólveig Berg - til endurkjörs
Dagskrárnefnd
Bjarki Þór Wium - til endurkjörs
Kristjana Margrét Sigurðardóttir - til endurkjörs
Guðný Arna Eggertsdóttir - til endurkjörs
Jarþrúður Iða Másdóttir - til endurkjörs
Orða- og ritstjórnarnefnd
Guðrún Harðardóttir - til endurkjörs
Bjarki Gunnar Halldórsson - til endurkjörs
Fanney Margrét Eiríksdóttir - til endurkjörs
Stjórn minningarsjóðs Guðjóns Samúelssonar
Aðalheiður Atladóttir - til endurkjörs
Bjarki Gunnar Halldórsson - til endurkjörs
Garðar Snæbjörnsson - til endurkjörs
Sigríður Maack, fyrir hönd formanns AÍ - fast sæti í stjórn
Formaður BÍL, Jóna Hlíf Halldórsdóttir - fast sæti í stjórn
Samtök og ráð sem AÍ er aðili að:
Bandalag íslenskra listamanna: Helga Guðrún Vilmundardóttir
Húsafriðunarnefnd: Sigbjörn Kjartansson (skipun frá 2025-2029)
Listskreytingarsjóður: Karl Kvaran (skipun frá 2024-2027)
Höfundarréttaráð: Laust sæti
Fulltrúaráð listahátíðar: Marcós Zótes (2025-2027)
Bakland LHÍ : Halldóra Vífilsdóttir
Hluthafahópur Miðstöðvarinnar: Jóhanna Höeg Sigurðardóttir
Að loknum hefðbundum aðalfundastörfum munu þau Borghildur Sturludóttir, arkitekt, Helgi Steinar Helgason, arkitekt, og Hulda Hallgrímsdóttir, stefnu- og viðskiptaþróunarstjóri Basalt, vera með örhugvekju um stöðu arkitektúrs árið 2026.
Árshátíð AÍ verður svo haldin í Gróðurhúsinu í Grósku þar sem Teiknistofan Tröð, PLAN Studio, Skala Arkitektar og Esja Arkitektar munu bjóða gestum í stutta heimsókn á stofur sínar og síðan boðið verður upp á veitingar í Gróðurhúsinu.
Við vonumst til að sjá sem flest félagsfólk mæta, taka þátt — og gleðjast saman! 🎉
Dagskrá aðalfundar:
- Skýrslur stjórna og nefnda.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins.
- Ávöxtun sjóða.
- Lagabreytingar.
- Kosningar:
a) Kosning stjórnar, sbr. 12. gr.
b) Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara.
c) Kosning í nefndir, sbr. 15. gr. Kosið skal sérstaklega um formenn þeirra.
d) Kosning fulltrúa í stjórn Minningarsjóðs Guðjóns Samúelssonar.
e) Kosning annarra fulltrúa í samtök og ráð sem félagið er aðili að. - Árgjald og rekstraráætlun sbr. 18. gr.
- Önnur mál, er upp kuna að vera borin
Atkvæðisrétt hafa allir viðstaddir fullgildir félagsmenn, sbr. þó 23. gr.
Fundargerð aðalfundar, undirrituð af fundarstjóra og ritara, skal liggja fyrir innan tveggja vikna frá aðalfundi og skal hún borin undir fyrsta almenna félagsfund þar á eftir.
