Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Ákall til hönnuða og arkitekta fyrir barnamenningarhátíðina Skúnaskrall

4. ágúst 2026

Hefur þú áhuga á að kveikja sköpunargleði barna og ungmenna með hönnun eða arkitektúr? Nú leita skipuleggjendur barnamenningarhátíðarinnar Skúnaskralls – Öll saman að hönnuðum, arkitektum, listafólki og öðrum skapandi einstaklingum sem vilja standa fyrir vinnustofum og viðburðum á hátíðinni.

Skúnaskrall verður haldið á Norðurlandi vestra dagana 21. október til 4. nóvember en markmið hátíðarinnar er að bjóða börnum og ungmennum fjölbreytta menningarviðburði víðs vegar um landshlutann. Skipuleggjendur hvetja nú áhugasama viðburðahaldara til að senda inn hugmyndir að dagskrá og sækja um styrk ef þörf er á.

Barnamenningarhátíðin var fyrst haldin árið 2022 og vakti þá mikla ánægju meðal barna, ungmenna og fjölskyldna þeirra. Hátíðin er nú endurvakin af Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) í samstarfi við sveitarfélög landshlutans.

„Hátíðin 2022 tókst vel til og vakti mikla lukku meðal barna og ungmenna á svæðinu auk fjölskyldna þeirra. Á Norðurlandi vestra búa tæplega 1.100 börn og við vonum að á dagskránni í haust verði eitthvað fyrir sem flest þeirra. Markmiðið er að bjóða upp á sem víðast svið menningarviðburða og að þeir dreifist vel um allan landshlutann,“ segir Berglind Björnsdóttir, verkefnastjóri hjá SSNV.

Nafn hátíðarinnar, Skúnaskrall, er skemmtileg tilvísun í Skagafjörð og Húnavatnssýslur ásamt orðinu skrall, enda fátt skemmtilegra en að skralla saman.

Í ár fékk hátíðin sex milljóna króna styrk úr Barnamenningarsjóði og er jafnframt eitt af áhersluverkefnum SSNV. Að sögn Berglindar skiptir sá stuðningur sköpum.

„Styrkur Barnamenningarsjóðs breytti mjög miklu fyrir hátíðina. Það er alveg stórkostlegt að finna þann mikla meðbyr sem barnamenning nýtur um þessar mundir og að börnin í landshlutanum okkar fái að njóta líka,“ segir Berglind.

Umsóknarfrestur er til 10. ágúst og öllum umsóknum verður svarað. Við hvetjum áhugasama hönnuði og arkitekta til að grípa tækifærið og taka þátt í að skapa fjölbreytta og metnaðarfulla barnamenningarhátíð fyrir börn og ungmenni á Norðurlandi vestra.

Sjá nánar á heimasíðu SSNV.

Tengt efni

  • Norðurslóð: Spurningar og svör um forval og samkeppnisferli

  • Fyrirhuguð samkeppni um uppbyggingu nýs alþjóðlegs Norðurslóðakjarna í Vatnsmýrinni í Reykjavík

  • Fórst þú á HönnunarMars?  Þá viljum við heyra frá þér

Dagsetning
4. ágúst 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Barnamenningarhátíð
  • SSNV
  • Skúnaskrall
  • SAMKEPPNIR

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200