Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hönn­un­art­eymið Flétta, þær Birta Rós Brynj­ólfs­dóttir og Hrefna Sigurð­ar­dóttir hönnuðu Amnesty sokkana í ár.

28. nóvember 2024

Amnesty sokkarnir fóru í sölu í dag, 28. nóvember. Þær Birta Rós Brynjólfsdóttir og Hrefna Sigurðardóttir hjá hönnunarteyminu Fléttu, hönnuðu sokkana í ár.

Sokkarnir eru ákaflega fallegir og hafa sterka skírkotun í starf Amnesty International. 

„Í merki Amnesty umlykur gaddagirðing kerti. Kertið táknar vonina og gaddagirð­ingin alla þá sem hafa orðið fyrir mann­rétt­inda­brotum. Við sem njótum þeirra forrétt­inda að geta áhyggju­laus barist fyrir bættum heimi erum með þessu minnt á alla þá sem ekki hefur tekist að bjarga. Amnesty Internati­onal beitir sér fyrir mann­rétt­indum vegna loft­lags­breyt­inga, tján­ing­ar­frelsis, dauðarefs­inga, einangr­un­ar­vistar fanga í gæslu­varð­haldi á Íslandi og málefnum flótta­fólks en það hefur aldrei verið eins mikil­vægt að berjast fyrir einmitt þessum málefnum. Við vildum að sokk­arnir væru áber­andi og minntu á þessi áherslumál Amnesty þannig stendur hver eigandi fyrir vonina en ber jafn­framt með sér áminn­ingu um alla þá sem þurfa á hjálp okkar að halda.“

-Flétta

Íslands­deild Amnesty Internati­onal selur sokka eftir íslenska hönnuði til styrktar mann­rétt­ind­a­starfinu og rennur allur ágóði af sokka­söl­unni óskiptur til mann­rétt­ind­a­starfs Íslands­deildar Amnesty Internati­onal.

Sokk­arnir eru fram­leiddir í verk­smiðju í Portúgal þar sem mikið er lagt upp úr sjálf­bærni í fram­leiðslu­ferlinu. Bómullin er form­lega vottuð af Cotton Made in Africa sem er staðall fyrir bómull í Afríku til að efla lífs­kjör smábænda og stuðla að umhverf­i­s­vænni bómullar­fram­leiðslu samkvæmt ströngum skil­yrðum. Sokk­arnir eru teygj­an­legir og komu í tveimur stærðum: 36-39 og 40-44.

Sjá nánar hér

Tengt efni

  • Jólamarkaður Saman í Hafnarhúsinu, laugardaginn 30. nóvember.

  • Katrín Alda hlýtur Indriðaverðlaunin 2024

  • Rammagerðin opnar nýja verslun í sögufrægu húsi

Dagsetning
28. nóvember 2024
Höfundur
Guðrún Edda Einarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Article
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200