Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Arnhildur Pálma­dóttir er borgarlistamaður Reykja­víkur 2026

18. júní 2026
Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, afhendir Arnhildi heiðursviðurkenninguna

Arnhildur Pálmadóttir var útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2026 við hátíðlega athöfn í Höfða í gær á 17. júní, en hún er jafnframt fyrsti arkitektinn til að hlotnast þann heiður. Arnhildi þarf vart að kynna, hún var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2025 og árið 2024 hlaut hún umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs fyrir þverfaglegt samstarf og nýstárlega nálgun á endurnýtt byggingarefni. Hún er stofnandi og eigandi arkitektastofunnar s. ap arkitektar sem sérhæfir sig í sjálfbærni og hringrásarhugsun í byggingariðnaði og hafa verk hennar hlotið athygli langt fyrir utan landsteinanna.

Arnhildur Pálmadóttir er fædd á Húsavík 1972 og útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2006 með BA-gráðu í arkitektúr. Hún hélt svo til Barcelona í framhaldsnám við ETSAB og lauk síðar meistaragráðu frá Institute for Advanced Architecture of Catalonia (IAAC). Samhliða störfum sínum sem arkitekt hefur hún skrifað greinar og texta um nýsköpun, tækni og sjálfbærni í hönnun og byggingariðnaði, og haldið fjölda fyrirlestra um þessi málefni.

Meðal verka hennar er íbúðarkjarni að Háteigsvegi 59 en sú bygging hlaut fyrr á árinu hönnunarverðlaun frá New European Bauhaus í flokki hringrásarsamfélagsins. Fyrir þá byggingu var Arnhildur einnig tilnefnd til Mies van der Rohe verðlaunanna 2025 og Hönnunarverðlauna Íslands 2025.

Nú stendur yfir bygging á sjö hæða íbúðarhúsi við Frakkastíg 1 þar sem gæði hönnunar mæta umhverfisvænum lausnum.

Hildur Björnsdóttir og Arnhildur Pálmadóttir fyrir utan Höfða á 17. júní
Frakkastígur 1
Íbúðakjarninn að Háteigsvegi 59
Íbúðakjarninn að Háteigsvegi 59
Íbúðakjarninn að Háteigsvegi 59
Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson, sonur hennar, í íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2025
Sýningin Lavaforming í íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2025
Lavaforming í íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2025
Arnhildur Pálmadóttir Feneyjatvíæringur
Arnhildur Pálmadóttir hlaut umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs fyrir þverfaglegt samstarf og nýstárlega nálgun á endurnýtt byggingarefni árið 2024
Mynd af Arnhildi Pálmadóttur
Arnhildur Pálmadóttir hlaut hvatningarviðurkenninguna 2025 frá Félagi kvenna í atvinnurekstri © Silla Páls
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, færði Arnhildi viðurkenninguna á húsnæðisþingi árið 2023 fyrir frumkvöðlastarf í mannvirkjagerð í tengslum við húsnæðisþing.

„Arnhildur hefur um árabil verið í fararbroddi nýrrar hugsunar í byggingarlist og skipulagi og hafa verk hennar vakið verðskuldaða athygli bæði hérlendis og erlendis,“ sagði Hildur Björnsdóttir borgarstjóri við athöfnina.

Arnhildur þakkaði fyrir viðurkenninguna sem hún sagði að væri mikill heiður. Hún sagði ánægjulegt að byggingarlist væri gert hátt undir höfði. 

„Ég þakka fyrir þennan heiður og lít á hann sem hvatningu til að halda áfram að spyrja spurninga, ögra viðteknum hugmyndum og taka þátt í samtalinu um þá framtíð sem við viljum skapa saman,“ sagði hún.

Við óskum Arnhildi Pálmadóttur innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu!

Tengt efni

  • Guðmundur Lúðvík hannar stólinn Backflip fyrir HAY

  • Opið fyrir ábendingar til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

  • ASK arkitektar vinna samkeppnisútboð um nýja Þjóðarhöll

Dagsetning
18. júní 2026
Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr
  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200