Guðmundur Lúðvík hannar stólinn Backflip fyrir HAY

Danska hönnunar-og húsgagnafyrirtækið HAY kynnti stólinn Backflip eftir hönnuðinn Guðmund Lúðvík á hönnunarhátíðinni 3daysofdesign sem haldin var í Kaupmannahöfn 6.-10. júní síðastliðinn. Guðmundur Lúðvík Grétarsson er einn af afkastamestu hönnuðum okkar Íslendinga. Hann hefur verið búsettur í Danmörku síðustu áratugi og hefur vakið mikla athygli fyrir hönnun sína en hann hefur hannað húsgögn fyrir fjölmörg hönnunarfyrirtæki.
Í tilkynningu frá Hay kemur fram að markmiðið var að hanna mjög þægilegan stól sem væri samanbrjótanlegur. Hingað til hafa klappstólar oft verið hannaðir fyrst og fremst með geymslu og flutning í huga, oft á kostnað þæginda, og var hugmyndin með þessum stól að breyta þeirri nálgun. Hann er ekki tímabundið sæti sem auðvelt er að flytja heldur góður stóll. Hann er hugsaður jafnt við matarboð, í fundarherbergi, á veitingastað eða í stórum opinberum rýmum.

Stóllinn var mörg ár í þróun, prófunum og endurbótum. Hver ákvörðun í þróunarferlinu mótaðist af samspili þæginda, smíði og hreyfingar. Það sem gerir Backflip einstakan er hvernig fellibúnaðurinn er falinn í bakinu frekar en setunni. Með einni einfaldri hreyfingu snýst bakið og stóllinn fellur saman á mjúkan og eðlilegan hátt. Útkoman er stóll sem færist áreynslulaust á milli notkunar og geymslu, án þess að fórna þeim þægindum og stíl sem vænst er af húsgagni til daglegrar notkunar.
Klappstóllinn er framleiddur úr gegnheilum við og fæst einnig í ólíkum litatilbrigðum. Sérhönnuð veggfesting, er einnig fáanleg í svörtu eða með náttúrulegri viðaráferð, en hún býður upp á stílhreina geymslulausn sem ber einn eða tvö samanbrotna stóla upp á vegg.
Backflip kemur í sölu í haust og bætist í hóp íslenskra hönnunarvara sem hafa vakið athygli langt út fyrir landsteinana.
Vefsíða Gudmundur Ludvik



