Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hönnunartengdir viðburðir í vikunni

23. janúar 2025

Ýmsar áhugaverðar sýningar og fyrirlestrar eru framundan í vikunni, hér er yfirlit yfir hönnunartengda viðburðadagskrá vikunnar. Góða skemmtun!

Fallegustu bækur í heimi

Fimmtudaginn 23. janúar kl. 17:00 opnar sýningin Fallegustu bækur í heimi á Hönnunarsafni Íslands, Garðatorgi.

Fallegustu bækur í heimi keppnin hefur verið haldin frá árinu 1963 með það að markmiði að hvetja til aukins alþjóðlegs samtals um bókahönnun. Árlega berast um það bil 600 bækur frá 30 löndum í keppnina og hljóta 14 þeirra verðlaun eða sérstaka viðurkenningu. Sýningin samanstendur af öllum bókunum fjórtán sem gestir geta flett og skoðað og er sýningin sett upp í samstarfi við Félag íslenskra teiknara og Stiftung Buchkunst.

Viðburður á Facebook

Bókin er núna

Bókin er núna, fyrirlestur Hans Gremmen í Safnahúsinu á dagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands, fimmtudaginn 23. janúar kl. 12:00 - 13:00, Safnahúsið.

Hans Gremmen er grafískur hönnuður með aðsetur í Amsterdam. Hann starfar á sviði ljósmyndunar, arkitektúrs og myndlistar og hefur hannað yfir 300 bækur og unnið til ýmissa verðlauna fyrir hönnun sína. Þar á meðal gullverðlaun í keppninni um bestu bókahönnun frá öllum heimshornum. Verk hans hafa verið sýnd í Stedelijk safninu, MoMA, Boijmans van Beuningen og Pompidou safninu. Árið 2008 stofnaði hann bókaforlagið Fw:Books, forlag með áherslu á ljósmyndatengd verkefni og bækur. Nýlega stofnaði hann ásamt Roma Publications ENTER ENTER; sýningarrými í miðbæ Amsterdam sem kannar mörk bókarinnar.

Viðburður á Facebook

Vinnusmiðjan Sjáðu! bækur

Vinnusmiðjan Sjáðu! bækur, verður föstudaginn 24. janúar kl. 13:00 og er ætluð öllum sem hafa áhuga á bókum, vönu bókagerðarfólki, hönnuðum, lestrarhestum og allt þar á milli.

Í vinnusmiðjunni verður lögð áhersla á að vinna með bækur á áþreifanlegan hátt. Þátttakendur fá að kynnast bókum með því að horfa, snerta og eiga við. Hver þátttakandi fær bók í hendur sem hann mun gaumgæfa, lýsa og síðan breyta og um leið kanna hvernig litlar breytingar eins og að brjóta saman, skera eða fjarlægja geta umbreytt því hvernig maður upplifir hlut, og möguleikunum sem hann býður upp á.  Jana Sofie og Una María Magnúsdóttir leiða vinnusmiðjuna en þær voru skólasystur í Rietveld Akademíunni í Amsterdam. 

Smiðjan miðast við 12 þáttakendur sem bóka sig á Tix.is

Viðburður á Facebook

Kyrr lífsferill

Laugardaginn 25. janúar kl. 15:00 opnar sýning Helga Vignis Bragasonar, Kyrr lífsferill, í Hafnarborg. Sýningin hverfist um myndræna rannsókn ljósmyndarans á byggingum og byggingarefnum.

Þá felur myndefnið í sér marglaga greiningu á upphafi og endalokum bygginga, þar sem Helgi skoðar á gagnrýninn hátt fjölmargar hliðar byggingariðnaðarins, svo sem efnisnýtingu, sóun og umhverfisáhrif. Á sýningunni má meðal annars sjá kyrralífsmyndir sem unnar eru út frá byggingarúrgangi eða velmegunartáknum af byggingarsvæðum, auk mynda af steypubrotum og teikninga af byggingum sem hafa verið rifnar langt fyrir aldur fram. Sýningarstjóri er Aldís Arnardóttir en sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands 2025.

Viðburður á Facebook

Innviðir

Sýningin Innviðir í Árnastofnun er opin frá 13–17, laugardaginn 25. og sunnudaginn 26. Janúar.

Húsnæði Árnastofnunnar í Árnagarði hefur verið táknmynd, virki eða hulstur utan um efnismenningu handritasafns Árna Magnússonar í rúm 50 ár. Nú þegar stofnunin hefur flutt yfir Suðurgötuna í Eddu eru síðustu forvöð til að upplifa, skrásetja og skjalfesta arfleifð hennar í Árnagarði.

Á sýningunni Innviðir tekst hópur listamanna, fræðimanna, hönnuða og arkitekta á við innviði og andrúmsloft Árnagarðs. Sýningunni er ætlað að gera efnislegri og óefnislegri umgjörð handritanna skil og fer fram í framhaldi af flutningi handritasafnsins yfir í Eddu.

Ekki er aðeins leitast við að miðla anda stofnunarinnar heldur ekki síður því millibilsástandi sem nú ríkir áður en Árnastofnun lokar endanlega dyrum sínum í Árnagarði og byggingin tekur stórtækum breytingum þegar framtíðin tekur sér þar bólfestu.

Viðburður á Facebook

Lokapartý Apotek Atelier á Laugavegi 16

Rýmingarsala! síðustu dagarnir á Laugavegi 16
Næstkomandi laugardag ætlum við að vera með lokapartý og rýma fyrir komandi flutninga.

ALLAR VÖRUR Á 15-70% AFSLÆTTI ásamt kaupaauka fyrir alla sem versla!

DJ Dóra Júlía spilar frá 15:00 - 18:00, búbblur og léttar veitingar í boði

ATH. Sif Benedicta & Sævar Markús eru ekki að hætta starfsemi, einungis flytja í nýtt húsnæði.

Viðburður á Facebook

Tengt efni

  • Sýningaropnun I Fallegustu bækur í heimi

  • Opið fyrir umsóknir í Hönnunarsjóð

  • Strik Studio hannar nýtt útlit HönnunarMars

Dagsetning
23. janúar 2025
Höfundur
Guðrún Edda Einarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200