Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
  • Fréttir

    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
  • Verkefni

    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
  • Íslensk hönnun og arkitektúr

    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
  • Fyrir hönnuði

    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
  • Fagfélög

    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

DesignTalks2020 - fyrstu fyrirlesarar kynntir til leiks

Fyrstu fyrirlesararnir sem kynntir eru til leiks og munu koma fram á DesignTalks 2020 í Hörpu þann 26. mars eru 
lífhönnuðurinnNatsui Audrey Chieza, stofnandi Faber Futures, og 
hönnunartvíeykið Studio Formafantasma, Andrea Trimarchi og Simone Farresin.

Ímyndunaraflið er mikilvægt núna. Það leikur enginn vafi á því að þessi nýja heimsmynd sem blasir við okkur kallar á að við horfumst í augu við vandann og ábyrgð okkar, kallar á aðgerðir og umbætur en ekki síður nýja framtíðarsýn. Að við veltum upp möguleikum, lausnum og jafnvel leiðum sem við viljum kannski ekki fara.Við verðum að halda áfram. Í það vísar þema dagsins.

Hlín Helga Guðlaugsdóttir

Natsai Audrey Chieza

Lífhönnuðurinn Natsui Audrey Chieza er stofnandi Faber Futures, þverfaglegrar „lífhönnunarframtíðarstofu“, sem starfar á mörkum náttúru, tækni og samfélags og leitar leiða til að tengja saman hönnun og vistkerfi í þeim tilgangi að takast á við vandamál heimsins, s.s. mengun og loftslagsbreytingar.



Chieza, sem er með bakgrunn í arkitektúr og meistaranám í „Materials Futures“, tilheyrir nýrri kynslóð hönnuða sem kanna möguleikann á notkun lífefnaframleiðslu (e.biofabrication), þ.e.a.s. framleiðslu efna úr lifandi efnivið, í stað hefðbundinna framleiðsluaðferða. Chieza er mjög virk í hönnun og hafa verk eftir hana verið sýnd á virtum söfnum um allan heim, s.s. Cooper Hewitt, Centre Pompidou, Vitra hönnunarsafnið og V&A. Fyrr á árinu vann hún Index verðlaunin fyrir verkefnið Coelicolor, sem kannar hvernig bakteríur geta komið í stað skaðlegra efna sem notuð eru til að lita efni í framleiðslu á fatnaði. Árið 2017 hélt hún TED fyrirlestur um aðferðir til að minnka sóun í tískubransanum.



Líffræði er ekki lengur fyrirbæri til að líkja eftir heldur samverkandi þáttur í
hönnunarferlinu og nýsköpuninni.

Natsai Audrey Chieza 

Andrea Trimarchi og Simone Farresin

Ítölsku hönnuðirnir Andrea Trimarchi og Simone Farresin mynda 
hönnunartvíeykið Studio Formafantasma og eiga þeir langan og fjölbreyttan feril að baki.

Þeir hafa unnið fyrir fyrirtæki á borð við Fendi, Max Mara - Sportmax, Hermès, Droog og Flos og sýnt á söfnum víða um heim, s.s. MoMA, Victoria and Albert, Centre Pompidou, Stedelijk Museum o.fl. Nálgun þeirra er rannsakandi, tilraunakennd og sjálfbærnimiðuð, en verk þeirra einkennast af rannsóknum á efnivið og viðfangsefnum á borð við samband hefða og staðbundinnar menningar, gagnrýna nálgun á sjálfbærni og merkingu hluta sem
menningarlegra fyrirbæra (e. cultural conduit). Undanfarin misseri hafa þeir meðal annars unnið að endurvinnslu á rafrusli
(e. e-waist) í verkefninu Ore Streams.
Þeir voru nýlega skipaðir stjórnendur í nýju meistaranámi við listaháskólann í Eindhoven, GEO-DESIGN, sem mun kanna þá samfélagslegu, landfræðilegu, 
efnahagslegu og landstjórnmálalegu þætti sem móta hönnun í dag.

Ég held að Ore Streams endurspegli þörf fyrir hönnun, ekki bara til að gefa hlutum form samkvæmt hefðinni, heldur líka til að laga það sem hefur brotnað. 

Simone Farresin, Formafantasma

designmarch
designmarchDesignTalks 2020 I Fyrstu fyrirlesarar kynntir til leiks! Lífhönnuðurinn Natsui Audrey Chieza, stofnandi Faber Futures, og hönnunartvíeykið Studio Formafantasma, Andrea Trimarchi og Simone Farresin koma fram á DesignTalks 2020 þann 26.mars í Hörpu. Á DesignTalks 2020 munu framúrskarandi hönnuðir, arkitektar og hugsuðir veita ríkulegan innblástur til góðra verka og varpa ljósi á mikilvægt og síbreytilegt hlutverk hönnunar og arkitektúrs í heimi nýrra áskoranna og stórfelldra breytinga. Kynnar DesignTalks2020 verða Hlín Helga Guðlaugsdóttir, stjórnandi dagsins, og Robert Thiemann, stofnandi og aðalritstjóri FRAME. // DesignTalks 2020 I First speakers announced! First speakers announced are biodesigner Natsui Audrey Chieza, founder of Faber Futures, and the design duo Studio Formafantasma, Andrea Trimarchi and Simone Farresin. DesignTalks 2020 will moderated by the curator, Hlin Helga, and Robert Thiemann, founder and editor in chief of FRAME Magazine. Ekki gleyma að tryggja þér miða! Make sure to grab your ticket! (Link in bio) #hönnunarmars #designmarch #designtalks #reykjavik #iceland

Á DesignTalks 2020 munu framúrskarandi hönnuðir, arkitektar og hugsuðir veita ríkulegan innblástur til góðra verka og varpa ljósi á mikilvægt og síbreytilegt hlutverk hönnunar og arkitektúrs í heimi nýrra áskoranna og stórfelldra breytinga.


Alþjóðlega ráðstefnan DesignTalks hefur fest sig í sessi sem einn af lykilviðburðum HönnunarMars og a
lls hafa um 100 manns komið þar fram. Þar má nefna arkitektinn Bjarke Ingels / BIG; tískufrömuðinn Calvin Klein; grafíska hönnuðinn
 Jessicu Walsh / Sagmeister&Walsh; hönnunartvíeykið Studio Swine;
 hönnunarstjórann Paul Bennett / IDEO; fatahönnuðinn, sjáflbærnifrumkvöðulinn og aktivistann Katharine Hamnett; matarhönnuðinn Marije Vogelzang;
arkitektinn Kristian Edwards / Snøhetta og þannig mætti lengi telja.

Kynnar DesignTalks 2020 verða Hlín Helga Guðlaugsdóttir, stjórnandi dagsins, og
 Robert Thiemann, stofnandi og aðalritstjóri FRAME.

Hér er viðburðurinn á Facebook
Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða á sérstöku forsöluverði. 
Síðustu ár hefur verið uppselt á DesignTalks svo það borgar sig að tryggja sér miða. 

 Ýttu hér til að tryggja þér miða.

DesignTalks 2020 er skipulagt af Hönnunarmiðstöð Íslands og styrkt af 
Arion Banka og Reykjavíkurborg.

Tengt efni

  • DesignTalks 2020 - Matthew Woolsey, 66°Norður og  Lucy Black-Swan & Andres Colmenares, IAM

  • DesignTalks 2020  - Mirko Ilic og Barbara, eftir Garðar Eyjólfsson og Martein Sindra Jónsson

  • Ýrúrarí sýnir peysu með öllu á HönnunarMars

Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • DesignTalks
  • HönnunarMars

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200

Þessi vefur notar vafrakökur (e. cookies) til að tryggja sem besta upplifun af notkun vefsins. Lesa meira um vafrakökur.