Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Dögg & Dýpi – í samtali við náttúruna á 3daysofdesign

15. maí 2026

Dögg og Dýpi verða með sýninguna Mitt á milli  í íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn á dönsku hönnunarhátíðinni 3daysofdesign sem fer fram dagana 10-12. júní. 

Mitt á milli er sýningin á verkum íslenska hönnuðarins Dögg, sem öll hafa sterka tengingu við náttúru og tíma.Hvert verk geymir sögu af stað, manneskju, efni eða augnabliki í tíma. Hlutir umbreytast, skapa rými fyrir leik, varðveita minningar og fylgja okkur í gegnum ólík skeið lífsins – frá bernsku til fullorðinsára, frá upphafi til enda. Þá endurspegla verkin aukna áherslu á sjálfbærni, ekki aðeins í efnisnotkun heldur einnig í félagslegu og tilfinningalegu gildi. Náttúran er ekki aðeins innblástur, heldur hluti af eðli verkanna og yfirborði sýningar sem unnin verður með náttúrulegri kalkmálningu úr íslenskum þörungum frá Dýpi, framleiddri úr kalkþörungum sem safnað er í Arnarfirði á Íslandi.

Á sýningunni verða bæði ný og nýleg verk eftir Dögg Guðmundsdóttur, sem ýmist voru unnin fyrir Snedkerens  Efterårsudstilling, sem er 45 ára gömul rótgróin hönnunarsýning haldin árlega með fókus á samvinnu milli hönnuðar og smiðs og Danmarks Næste Klassiker, sem er danskur raunveruleikaþáttur um húsgagnahönnun þar sem hönnuðir keppa um að skapa húsgögn sem geta orðið dönsk hönnunarklassík.

Dýpi hófst sem frumkvöðlaverkefni, þróað af þeim Sirrý Ágústsdóttur, frumkvöðli og Árnýju Þórarinsdóttur, arkitekt og er fyrsta íslenska kalkmálninginn sem unnin er úr vottuðu sjávarkalki. Málningin andar einstaklega vel, er  umhverfisvæn, plastlaus og frábært dæmi um hvernig nýta má náttúrulegt hráefni sem fellur til í miklu magni með nýskapandi hætti. Dýpi var tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2025.

Sýningarstjóri er Ólöf Rut Stefánsdóttir, þverfaglegur skapandi stjórnandi sem starfar á sviði hönnunar, viðburða og miðlunar. Hún hefur í gegnum árin unnið með fjölmörgum hönnuðum og listamönnum og frá árinu 2020 hefur hún verið stjórnandi í Ásmundarsalar, menningarhúss í Reykjavík.

Þetta er í fjórða sinn sem Miðstöð hönnunar og arkitektúrs tekur þátt í 3daysofdesign  í samstarfi við íslenska sendiráðið í Danmörku og Íslandsstofu.

Opnunarhóf: Miðvikudaginn 10. júní kl. 16.30 - 18.30.

Heimilisfang: Strandgade 89, 1401 København

Vinsamlegast skráðu þig hér.

Facebook viðburður

Hér má lesa nánar um sýninguna og 3daysofdesign hátíðina

Hér má lesa nánar um sýninguna og 3daysofdesign hátíðina

Tengt efni

  • FÓLK, BAÐ, Fischersund og Flothetta á hátíðinni 3daysofdesign

  • Íslenska vöruhúsið opnaði á 3daysofdesign í Kaupmannahöfn

  • Samband/Connection á 3 days of design

  • Pítsastund og Hæ/Hi opnuðu á 3daysofdesign í Kaupmannahöfn

Dagsetning
15. maí 2026
Höfundur
Klara Rún Ragnarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • 3daysofdesign
  • GREINAR
  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200