Íslenska vöruhúsið opnaði á 3daysofdesign í Kaupmannahöfn

Íslenska sendiráðið iðaði af lífi á opnun sýningarinnar Íslenska vöruhúsið. Á sýningunni sameinast FÓLK, BAÐ eftir Epal, Fischersund og Flothetta sem eiga það sameiginlegt að vinna með menningararf og sögu Íslendinga. Gestir hvaðanæva fjölmenntu og nutu sýningarinnar.
Sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, Pétur Ásgeirsson, ávarpaði gesti og opnaði sýninguna formlega ásamt Höllu Helgadóttur, framkvæmdastjóra Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.
- FÓLK sýnir nýja útgáfu af klassískum íslenskum húsgögnum eftir Gunnar Magnússon og nýjar vörur úr náttúrulegum og endurunnum efnum.
- BAÐ, samstarfsverkefni íslenskra hönnuða fyrir Epal, sérhæfa sig í að þróa vörur sem dregur innblástur frá ósnertri náttúru og tengjast einstakri baðmenningu Íslands.
- Fischersund, listasamsteypa og fjölskyldurekið ilmhús, talar til allra skilningarvita í gegnum ilm, tónlist og myndlist.
- Flothetta er hönnunarverkefni sem gengur út á heilun í vatni.
Sýningin verður aðgengileg á opnunartíma sendiráðsins, kl 09-16 alla virka daga, frameftir sumri.
Hátíðin 3daysofdesign hefur verið haldin árlega síðan 2013 og er orðin stærsta hönnunarhátíð Skandinavíu. Í ár voru sýningar yfir 400 talsins en hátíðin teygir anga sína víða um Kaupmannahöfn, fer fram í sýningarsölum, verslunum, götum, galleríum, sendiráðum og víðar.
Sýningarnar eru framleiddar af hönnunarteymunum í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, íslenska sendiráðið í Danmörku og Íslandsstofu.
Hér má sjá myndir af opnuninnni frá Hildi Maríu, ljósmyndara:





















