Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands á heimssýningunni

2. júní 2025

Íslandi var fagnað á þjóðardegi sínum, þann 29. maí, á heimssýningunni í Osaka þar sem forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, var heiðursgestur. Dagskrá dagsins var vel sótt en um 140 þúsund gestir heimsóttu sýninguna þann dag.

Dagskrá dagsins í Norræna skálanum, þar sem Ísland er í samstarfi við hin fjögur Norðurlöndin, samanstóð af fjölbreyttum viðburðum þar sem gestum gafst kostur á að fá innsýn inn í og upplifa íslenska menningu í gegnum hönnun, fræðandi samtöl, tónlist og bókmenntir.

Íslenska hönnunarteymið Gagarín var með sérstakar leiðsagnir um sýningu skálans yfir daginn fyrir gesti, en áætlað er að um 600 gestir hafi sótt leiðsagnirnar. Norræni skálinn er hannaður af Gagarín í samstarfi við dönsku hönnunarstofuna Kvorning Design og norsk/íslensku arkitektastofuna Rintala Eggertsson.

Aðalsýningarsalurinn er róleg upplifun og má segja að hann minni á norrænan zen-garð. Miðpunktur sýningarinnar er listaverk úr pappír og ljósi sem svífur í rýminu en Gagarín framleiddi 20 mínútna myndverk The Circle of Trust sem fjallar um árstíðirnar fjórar og lífið á Norðurlöndunum. Gagarín fékk tvíeykið Sindra Má Sigfússon (Sin Fang) og Kjartan Hólm til samstarfs varðandi hljóðverk sem spilast í takt við myndverkið. Auk myndverksins framleiddi Gagarín níu gagnvirkar sögur sem miðla til gesta  sérstöðu Norðurlandanna, tækniframförum, lífsviðhorfum og hvernig þau hafa unnið saman í áratugi að því að skapa eitt samþættasta svæði veraldar. 

Flétta og Ýrúrarí buðu upp á verðlaunapítsur úr ullarafgöngum en langar raðir mynduðust af spenntum gestum sem þurftu að taka þátt í sérstöku lottói um hvort þau fengju pítsu eða ekki, svo mikil var aðsóknin. Að þessu sinni buðu Flétta og Ýrúrarí upp á sérhannaðann japanskan matseðil.

Fullt var út úr dyrum á bókmenntaviðburði með Rán Flygenring, mynd-og rithöfundi, og Shohei Akakura, þýðanda, um bók Ránar, Vigdís: bókin um fyrsta konuforsetann, sem nýverið kom út á japönsku.

Næstu helgi fer svo fram menningarhátíðin Taste of Iceland í Tokyo þar sem almenningi í Japan gefst kostur á að sækja viðburði og fá forsmekkinn af því hvað Ísland hefur upp á að bjóða í hönnun, myndlist, bókmenntum, tónlist og náttúrufegurð.

Tengt efni

  • Íslenska þjóðardeginum fagnað á heimsýningunni í Osaka

  • Íslensk hönnun og hugvit á Heimssýningunni í Japan

  • Koddaslagur BAHNS 2025

Dagsetning
2. júní 2025
Höfundur
Klara Rún Ragnarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • GREINAR
  • Fagfélög
  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200