Íslensk hönnun og hugvit á Heimssýningunni í Japan

Þema Heimssýningarinnar er traust og samvinna en markmið sýningarinnar er að efla viðskiptasamband Norðurlandanna við aðrar þjóðir en Japan er þriðja stærsta hagkerfi heims. Heimssýningin sem haldin er á fimm ára fresti er alþjóðlegur viðburður með mismunandi þemum sem tekur á hnattrænum áskorunum en þemað í ár snýst um hvernig tækni, sjálfbærni og alþjóðlegt samastarf geta stulað að betri framtíð fyrir alla.
Íslenska hönnunarstofan Gagarín var í sigurliði um hönnun og hugmyndavinnu fyrir samnorræna skálann sem opnaði við hátíðlega athöfn í apríl síðastliðnum. Sýningin fjallar um lífið á Norðurlöndunum með áherslu á gildi, nútímasamfélög, vitundarvakningu og hið eilífðar samband okkar við náttúruna en auk Gagarín var danska hönnunarstofan Kvorning Design og Rintala Eggertsson í vinningsteyminu. Að sögn Kristínar Evu Ólafsdóttir, framkvæmdastjóra Gagarín er mikill heiður og viðurkenning að fá að hanna sýningarskála sem er kynningarvettvangur fyrir öll Norðurlöndin en þetta er fyrsta sýningarverkefni fyrirtækisins í Asíu.
Sýningin stendur í sex mánuði og er búist við að rúmlega 28 milljón manns heimsæki sýningarsvæðið. Norræna upplifunin hefst utandyra á meðan gestir bíða í röð eftir því að komast inn. Þar er gestum er boðið uppá Smakkseðil frá Norðurlöndunum í formi gagnvirkrar upplifunnar í síma. Þar geta gestir flakkað á milli Norðurlandanna í 360°upplifun.
Aðalsýningarsalurinn er róleg upplifun og má segja að hann minni á norrænan zen-garð. Miðpunktur sýningarinnar er listaverk úr pappír og ljósi sem svífur í rýminu en Gagarín framleiddi 20 mínútna myndverk The Circle of Trust sem fjallar um árstíðirnar fjórar og lífið á Norðurlöndunum.
Gagarín fékk tvíeykið Sindra Má Sigfússon (Sin Fang) og Kjartan Hólm til samstarfs varðandi hljóðverk sem spilast í takt við myndverkið.
Auk myndverksins framleiddi Gagarín níu gagnvirkar sögur sem miðla til gesta sérstöðu Norðurlandanna, tækniframförum, lífsviðhorfum og hvernig þau hafa unnið saman í áratugi að því að skapa eitt samþættasta svæði veraldar.

Grunnstef Norðurlandanna
Að finna grunnstef fyrir fimm þjóðir í einni sýningu var ákveðin áskorun. Eitt af því sem við eigum sameiginlegt er veðurfar og náttúra og til þess að lifa af í þessu umhverfi þurfum við hvert annað, við treystum hvert öðru og vinnum saman. Við leituðum innblásturs í náttúrunni þar sem við sáum ákveðin mynstur sem geta endurspeglað Norðurlöndin sem eina heild, til dæmis fiskitorfur, vetrarbrautir, fuglahópa, og hreindýrahjarðir, sem mynda hóp sem virkar sem ein heild, en samt er hver einstaklingur sérstakur. Það er enginn einn leiðtogi. Við fundum einnig ákveðna samsvörun við japanska Ensó hringinn sem táknar allt og ekkert seinn, opinn og óendanlegur. Út frá þessari hugsun varð til kjarni sem við unnum eftir út í gegnum sýninguna: Nordic Circle
Allar nánari upplýsingar veitir
Kristin Eva Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Gagarín
kristin@gagarin.is



