Íslenska þjóðardeginum fagnað á heimsýningunni í Osaka

Ísland fagnar þjóðardegi í Norræna skálanum á heimssýningunni í Osaka þann 29. maí. Yfirskrift dagsins er Friður og jafnrétti þar sem sérstakur heiðursgestur er Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir.
Dagskrá dagsins samanstendur af viðburðum þar sem gestum gefst kostur á að fá innsýn inn í og upplifa íslenska menningu í gegnum hönnun, fræðandi samtöl, tónlist og bókmenntir.
Meðal þeirra sem koma fram eru hönnuðirnir Flétta og Ýrúrarí sem bjóða gestum upp á verðlaunapitsurnar sínar unnar úr ullar afgöngum, tónlistarfólkið Ásgeir, JFDR og Gabríel Ólafs og rithöfundurinn Rán Flygenring sem mun kynna bók sína Vigdís, bókin um fyrsta kvenforsetann sem nýverið kom út á japönsku.
Ísland tekur þátt í heimssýningu í Osaka í sameiginlegum skála Norðurlandanna fimm: Danmerkur, Finnlands, Noregs, Svíþjóðar og Íslands. Megináhersla skálans er að gefa innsýn í lífið í norðri, norræn gildin og náið samband landanna við náttúruna.
Aðalatriði skálans er sýning sem íslenska hönnunarstofan Gagarín og hönnunarfyrirtækin Exponex, Wintenex, Habegger, Kvorning Design og Rintala Eggertsson Architects hönnuðu.
Sýningin fjallar um lífið á Norðurlöndunum með áherslu á gildi, nútímasamfélög, vitundarvakningu og hið eilífðar samband við náttúruna. Í miðju skálans er stórt lifandi 20 mínútna myndverk sem fjallar um árstíðirnar og lífið á Norðurlöndunum. Íslensku tónlistarmennirnir Sindri Már Sigfússon (Sin Fang) og Kjartan Hólm gerðu hljóðverk sem spilast í takt við myndverkið „The Circle of Trust“. Auk myndverksins framleiðir Gagarín níu gagnvirkar sögur og hugbúnað í síma þar sem gestir geta ferðast um Norðurlöndin.
Samhliða heimssýningunni í Osaka mun Taste of Iceland hátíðin fara fram í Tokyo dagana 30.- 31. maí. Þar gefst almenningi og fagfólki í Tokyo kostur á að kynnast íslenskri menningu, matargerð og Íslandi sem áfangastað á fjölbreyttum viðburðum víðsvegar um borgina. Dagskráin er skipulögð í samstarfi við helstu miðstöðvar lista og skapandi greina og spannar hönnun, bókmenntir, myndlist og tónlist með þátttöku íslenskra listamanna.
Hér má sjá nánar dagskrá Taste of Iceland í Tokyo (á japönsku).