Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Eldhúsumræður með smakki

Á sunnudaginn, 19. nóvember fara fram tveir fyrirlestrar í Hönnunarsafni Íslandi sem fjalla um eldhús þar sem m.a verður boðið upp á smá smakk frá mismunandi tímabilum á meðan á fyrirlestrunum stendur.

13:00
Halldóra Arnardóttir: Kristín Guðmundsdóttir, híbýlafræðingur. Eldhúsið sem menningarfyrirbæri.

Halldóra Arnardóttir listfræðingur og sýningarstjóri skrifaði bók um Kristínu Guðmundsdóttur árið 2015 sem gefin var út af Hinu íslenska bókmenntafélagi. Kristín Guðmundsdóttir (1923-2016) var fyrst Íslendinga til að mennta sig í innanhússhönnun á háskólastigi. Í júní 1943 steig hún um borð í Brúarfoss sem sigldi síðan yfir Atlantshafið og lagðist að bryggju í New York 21. júlí. Kristín brautskráðist frá Northwestern University í Chicago árið 1946 og hélt síðan í framhaldsnám í New York School of Interior Decoration. Hún flaug heim til Íslands árið 1947 með Loftleiðum og hóf þá að miðla hugmyndum sínum um skipulag heimila, eldhúss og herbergja sérstaklega, með hugtökin hagkvæmni, þægindi og fegurð að leiðarljósi. Allt til þess að auka lífsgæði allra heimilismanna. 

14:00
Sigrún Hanna Þorgrímsdóttir: Mesta fjörið er alltaf í eldhúsinu

Í erindinu segir Sigrún frá rannsóknum sínum frá árinu 2007 á eldhúshönnun frá sjónarhóli íbúans. Markmiðið var að kanna hvernig niðurrif veggja, sem breytti eldhússkonsum í opin rými, hélst í hendur við breyttar þarfir, gildi og væntingar til heimilisins í samtímanum.

Sigrún Hanna er þjóðfræðingur sem fæst við rannsóknir á efnismenningu og heimilisháttum. Sigrún hefur áhuga á því hvernig ólíkir þátttakendur hafa áhrif á stöðuga mótun og endurmótun lifandi bygginga í hversdeginum. 

Aðgangseyrir að safninu gildir.

Viðburður á Facebook

Tengt efni

  • Framúrskarandi fögnuður á Hönnunarverðlaunum Íslands 2023

  • SP(R)INT STUDIO og Nissen Richards Studio vinna samkeppni um sýningu í gestastofu í Mývatnssveit

  • Samkeppni um byggingu stúdentagarða fyrir Félagsstofnun stúdenta á Akureyri

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Fagfélög
  • Hönnunarsafn Íslands

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200