Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

SP(R)INT STUDIO og Nissen Richards Studio vinna samkeppni um sýningu í gestastofu í Mývatnssveit

8. nóvember 2023

Niðurstöður hafa verið birtar í hönnunarsamkeppni um sýningu í nýrri gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs og Umhverfisstofnunar í Mývatnssveit. Það var fransk-íslenska hönnunarfyrirtækið SP(R)INT STUDIO ásamt Nissen Richards Studio sem bar sigur úr býtum en þrjár tillögur voru í lokasamkeppninni eftir forval hjá Ríkiskaupum, Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og Vatnajökulsþjóðgarði.

Hönnunarsamkeppnin var í tveimur þrepum þar sem þrjú teymi voru valin í forvali til að vinna að og leggja fram lokatillögur undir nafnleynd að hönnun og uppsetningu grunnsýningarinnar. Þrjár samkeppnir í þjóðgörðum voru auglýstar á Evrópska efnahagssvæðinu í apríl 2023 fyrir þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs á Hellissandi, gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri og gestastofu Umhverfisstofnunar og Vatnajökulsþjóðgarðs á Skútustöðum við Mývatn.

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs var ráðgefandi aðili samkeppninnar en Ríkiskaup sáu um framkvæmd hennar. Tvær dómnefndir voru skipaðar, hvor fyrir sitt þrep keppninnar, af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, Umhverfisstofnun og Vatnajökulsþjóðgarði. Af þeim þremur teymum sem valin voru í forvalinu voru tvö íslensk og eitt erlent. 

Sýningunni í gestastofunni Gíg í Mývatnssveit er ætlað að höfða til breiðs hóps, jafnt heimafólks sem innlendra og erlendra gesta. Markmið gestastofunnar er að auka þekkingu gesta á verndarsvæði Mývatns og Láxár og hálendi norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, skilning á ýmsum fyrirbærum í náttúru svæðisins og með því mikilvægi náttúruverndar. Lagt er upp með að rauði þráður sýningarinnar verði verndun og vísindi. Saga verndunar og vísinda er bæði gömul og ný á hálendinu og í Mývatnssveit og tilvalið að þræða hana í gegnum söguþráð sýningarinnar, dýpka þannig tengingu gesta við umhverfið og vekja þá til umhugsunar.

Aðstandendur keppninnar þakka öllum fyrir góða þátttöku og óska SP(R)INT STUDIO og Nissen Richards Studio til hamingju.

Tengt efni

  • Tillaga SP(R)INT STUDIO og Nissen Richards vinnur samkeppni um sýningu í nýrri gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri

  • Þrjár samkeppnir um sýningar í þjóðgörðum Íslands

  • Fögnum framúrskarandi íslenskri hönnun 9. nóvember

Dagsetning
8. nóvember 2023

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Samkeppni

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200