Fögnum framúrskarandi íslenskri hönnun 9. nóvember

26. október 2023

Afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2023 fer fram í Grósku þann 9. nóvember. Fyrir verðlaunaafhendinguna verður sjónum beint að þeim fjölbreyttu verkum sem hljóta tilnefningu til í ár og gestum gefst tækifæri til að fá innsýn og taka þátt í samtali um þau. 

Hönnunarverðlaun Íslands verða veitt í tíunda sinn í ár og af því tilefni hefur verðlaunaflokkum verið fjölgað í þrjá undir heitunum Vara // Staður // Verk.

Þrjár tilnefningar eru í hverjum flokki og af þeim hlýtur einn sigurvegari í hverjum flokki Hönnunarverðlaun Íslands 2023 sem eru hvoru tveggja heiðurs- og peningaverðlaun. Auk þess verða veitt Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun.

Hönnuðir og höfundar tilnefndra verka munu stíga á svið í Grósku og fjalla um verkefnin sín, innblástur, hugmyndir, útkomu og áhrif. Logi Pedro Stefánsson, vöruhönnuður og tónlistarmaður og Sunnefa Gunnarsdóttir, arkitekt eru kynnar og sjá um að leiða samtal við tilnefnda. 

Í kjölfarið fer fram afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2023 ásamt fögnuði og skál. 

Dagskrá

Samtal

15:00 Húsið opnar - Kaffi í boði Kaffitárs

15:30 Innsýn inn í tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2023

16:30 Kaffihlé

16:50 Innsýn inn í tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2023

17:30 Fordrykkur

Verðlaunaafhending 

18:00 - 19:30 Afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2023

19:30 - 21:00 Fögnuður og skál 

Þar sem sætafjöldi er takmarkaður biðjum við gesti vinsamlegast að skrá sig hér.

Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt. 

Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu, Samtök iðnaðarins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. 

Tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2023

Dagsetning
26. október 2023
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Tögg

  • Greinar
  • Fagfélög
  • Hönnunarverðlaun Íslands