Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Ert þú frumkvöðull eða sproti og vantar aðstöðu?

8. september 2020

Nýtt frumkvöðla- og sprotasetur opnar í Grósku. Vísindagarðar Háskóla Íslands opna á næstunni framúrskarandi aðsetur fyrir frumkvöðla- og sprotafyrirtæki á fyrstu stigum, þar sem boðið er upp á vinnuaðstöðu, fjölbreytta fræðslu og þjálfun. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs verður með skrifstofu í setrinu.

Í setrinu verða einnig fjölmörg tækifæri til tengslamyndunar og fullkomin aðstaða fyrir gróskumikið grasrótarstarf, viðburði, vinnusmiðjur, hakkaþon og keppnir.

Setrið er í hjarta Vísindagarða þar sem nú þegar er að finna lyfjafyrirtækið Alvotech og Íslenska erfðagreiningu. Í sama húsi eru höfuðstöðvar CCP og mörg önnur öflug fyrirtæki og fjárfestar. Þarna er ætlunin að byggja upp framúrskarandi samfélag frumkvöðla með áherslu á að tengja saman viðskipti, tækni og skapandi greinar.  Nálægð við háskóla, Landspítala og mörg helstu nýsköpunarfyrirtæki landsins veitir einstakt tækifæri til tilrauna, þekkingarflæðis og verðmætasköpunar.

Hönnun hússins er í höndum Andrúm arkitekta í samstarfi við DKPitt arkitekta.

Hvað er í boði?

Á setrinu verða nokkrir leigumöguleikar í boði. Í opnu rými verður hægt að velja um “laus borð” eða “föst borð”.

·       Laust borð: Leigan miðast við það að þú sitjir á einhverju af lausu borðunum á staðnum sem geta verið mismunandi eftir dögum. Kynningarverð: 15.000 kr. á mánuði + vsk. Leigutími allt að 18 mánuðir.

·       Fast borð: Leigan miðast við að þú eigir ákveðið borð og getir gengið að því vísu dag hvern. Kynningarverð: 30.000 kr. á mánuði + vsk. Leigutími allt að 18 mánuðir.

Báðum þessum kostum fylgir “Munaskápur” þar sem hægt er að geyma dótið sitt eftir hvern dag þar sem rýmið er opið.

Auk borða í opna rýminu verður hægt að leigja stærri rými sem eru hugsuð fyrir lengra komin nýsköpunarfyrirtæki sem vinna í teymum.

·       15m2 lokað rými/skrifstofa: Verð 1,8 Mkr. á ári + vsk.

·       25m2 lokað rými/skrifstofa: Verð 3 Mkr. á ári + vsk.

Innifalið í leigu er aðstaða í fundarherbergjum, setustofum og fyrirlestrarýmum setursins, nettenging og aðgangur að prenturum.

Hvernig á að sækja um að fá aðstöðu?

Þeir sem hafa áhuga á að sækja um, senda tölvupóst á netfangið visindagardar@hi.is og tilgreina hvað þeir óska eftir mörgum vinnustöðvum í opnu rými eða hvort þeir kjósa að leigja 15 - 25 fermetra skrifstofu. Þá þarf einnig að koma fram stutt lýsinga á verkefninu og aðrar upplýsingum sem talið er að gagnist við að meta umsóknina.

Með þessu nýja og kraftmikla setri verður til opinn vettvangur fyrir öll þau sem áhuga hafa á nýsköpun og sprotastarfi. Eftirtaldir aðilar hafa aðsetur í setrinu, eru með lausa aðstöðu á sínum snærum og styðja frumkvöðla og sprota til eflingar nýsköpunar í landinu:

·       Icelandic Startups

·       Ferðaklasinn

·       Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

·       Auðna tæknitorg

·       Vísinda- og nýsköpunarsvið HÍ

 

Heimasíða Vísindagarða

Tengt efni

  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs flytur í Grósku - nýtt hugmyndahús í Vatnsmýrinni

  • Hönnunarsjóður – umsóknarfrestur rennur út 17. september

  • Aníta Hirlekar vinnur til gullverðlauna á The International Design Awards

Dagsetning
8. september 2020
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Hönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200