Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Fjölskylduvænir viðburðir á HönnunarMars

15. maí 2021
Kyrrðarrými - kuðungur frá Þykjó - sem er með sýningar á HönnunarMars í Menningarhúsum Kópavogs.

HönnunarMars fyrir unga sem aldna. Nú er HönnunarMars að fara að breiða úr sér um allan bæ með fjölda viðburða af öllu tagi og að sjálfsögðu er boðið upp á metnaðarfulla dagskrá fyrir alla fjölskylduna.

HönnunarMars fer fram dagana 19.-23. maí og er um fjölda viðburða að velja úr. Hér fyrir neðan höfum við tekið saman þá viðburði sem gætu verið sérstaklega áhugaverðir fyrir yngri kynslóðina.


Allar sýningar og sýningarstaðir HönnunarMars fylgja gildandi sóttvarnarreglum er varða samkomutakmarkanir og grímuskyldu.

Peysa með öllu fyrir alla, uppskeruhátíð

Ýr Jóhannsdóttir er textílhönnuður og listakona sem starfar undir nafninu Ýrúrarí. Verk hennar eru að mestu unnin í prjóni og í þeim mætast húmor, handverk og hreyfing. Ýr hefur miðlað aðferðarfræði sinni í smiðjum þar sem unnið er með ósöluhæfar peysur úr fatasöfnun Rauðakrossins og þær fá nýtt líf.

Peysa með öllu fyrir alla, uppskeruhátíð

Ofurhetjur jarðar

Sýningarsal á fyrstu hæð Bókasafnsins og Náttúrfræðistofu Kópavogs er umbreytt í töfraveröld þar sem börn geta komið og brugðið sér í gervi fjölskrúðugra dýra. Dýrin eru ævintýraverur, innblásnar af mögnuðum eiginleikum dýra úr ýmsum vistkerfum jarðar. Búningarnir eru hannaðir með það í huga að þeir passi börnum á ólíkum aldursskeiðum.

Ofurhetjur jarðar

Krakkaklúbburinn Krummi í Listasafni Íslands

Í tilefni Hönnunarmars býður Krakkaklúbburinn krummi börnum og fjölskyldum þeirra í skemmtilega bókasmiðju þann 22.maí 2021 kl. 14 í Listasafni Íslands.
Listaverkin á sýningum safnsins veita innblástur að gerð svokallaðra sprettimyndabóka.
Sprettimyndabók er þrívíð bók eða sviðsmynd sem hægt er að draga út og saman líkt og harmónikku en í miðjunni birtist sviðsmynd þar sem þú hannar þitt eigið bókverk.

Krakkaklúbburinn Krummi

Allir út að læra

Námsgögnin Allir út að læra! byggja á því að nýta þann efnivið sem náttúran býður upp á og ýmis konar tækifæri til rannsókna og uppgötvana sem fólgin eru í útikennslu. Nemendur fá að kynnast ýmsum viðfangsefnum með því að rannsaka, skapa og finna sínar eigin lausnir. Námsgögnunum er ætlað að ýta undir að nemendur öðlist þekkingu með því að snerta, hreyfa og upplifa með öllum líkamanum.

Allir út að læra

Fylgið okkur

Sýningin Fylgið okkur teflir fram völdum verkum frá íslenskum hönnuðum sem eru nýsprottnir fram á sjónarsviðið. Hönnuðirnir eiga það sammerkt að hafa með sínum fyrstu verkum vakið athygli og eftirvæntingu, hver á sínu sviði

Fylgið okkur

Jarðsetning

Í innsetningunni JARÐSETNING er stigið inn í byggingu Iðnaðarbankans og fylgst er með niðurrifi hennar innanfrá.

Jarðsetning

Af ásettu ráði

Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands 2021, „Af ásettu ráði“ fer fram í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi við Tryggvagötu dagana 15. -24. maí. Þar sýna útskriftarnemendur á BA stigi í arkitektúr, fatahönnun, grafískri hönnun, vöruhönnun og myndlist ásamt útskriftarnemendum í MA hönnun.

Af ásettu ráði

Samhæfður dans í Vesturbæjarlauginni

BAHNS kynnir þriðju sundfatalínuna sína með einstakri sundupplifun í Vesturbæjarlauginni. Dansarar sýna móderniseraðan samhæfðan dans í nýjustu sundfötum merkisins. Sýningarnar verða tvær, klukkan 16.30 og 17.30 en ókeypis verður í laugina milli 16 og 18 föstudaginn 19. maí.

Samhæfður dans í Vesturbæjarlauginni

Maðurinn í skóginum

Með varanlegum innsetningum í nokkrum skógarrjóðrum hafa tvö hönnunarteymi skapað áfangastaði í hólmanum, sem minna á sögu skógarins og þá miklu gleði og góða anda sem fylgdi skógræktinni. Fólki gefst þar kostur á að eiga samveru í skjóli, fræðast, njóta náttúrunnar og fallegrar hönnunar.

Maðurinn í skóginum

Ekki missa af HönnunarMars í maí.

Stærsta hönnunarhátíð landsins HönnunarMars fer fram dagana 19-23. maí 2021. 

Ýttu hér.

Tengt efni

  • FÍT keppnin 2021 – Verðlaunahafar

  • Minn HönnunarMars ... í maí

  • HönnunarMars breiðir úr sér í maí

Dagsetning
15. maí 2021

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • HönnunarMars

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200