Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

FÓLK framleiðir hönnun Gunnars Magnússonar

Dæmi um hönnun Gunnars Magnússonar, heiðurverðlaunahafa Hönnunarverðlauna Íslands 2021

Hönnunarfyrirtækið FÓLK Reykjavík og Gunnar Magnússon, sem hlaut Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands 2021, hafa undirritað samning um endurútgáfu og einkarétt á útgáfu hönnunar Gunnars og kynningar og markaðssetningar á hönnunarverkum hans og arfleifð næstu árin.

FÓLK mun þróa vörur Gunnars til endurútgáfu í samstarfi við Gunnar og fjölskyldu með sjálfbærni og hringrás hráefna að leiðarljósi.

Gunnar Magnússon þekkja margir Íslendingar sem eitt af stóru nöfnunum í íslenskri hönnunarsögu. Hönnun Gunnars vakti mikla athygli á erlendri grundu og vann hann í samstarfi við nokkra af fremstu hönnuðum Dana eins og Borge Mogensen auk þess að ná góðum árangri í alþjóðlegum hönnunarsamkeppnum á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann snéri með fjölskylduna aftur til Íslands árið 1964 þar sem hann stofnaði eigin teiknistofu og vann í fjóra áratugi að fjölmörgum verkefnum fyrir fjölskyldur og fyrirtæki, bæði hlutum og stærri verkefnum til dæmis fyrir Hótel Holt, Kennaraháskólann, Alþingi og banka.

”Það er til marks um gæði hönnunar Gunnars hvað hún stenst vel tímans tönn. Hún er skýrt framlag Íslendinga til Norrænnar hönnunarhefðar síðustu aldar sem nýtur enn í dag mikillar hylli á heimsvísu. Það er því mjög spennandi að fá tækfæri til að endurútgefa hana í samræmi við okkar áherslur um sjálfbærni og hringrás hráefna ” segir Ragna Sara stofnandi og listrænn stjórnandi FÓLKs.

Hér má sjá myndband sem var gert í tilefni að Heiðurverðlaunum Hönnunarverðlauna Íslands 2021.

–

Framleiðsla: Blóð Studíó

Um FÓLK Reykjavík

Hönnunarmerkið Fólk er nýsköpunarfyrirtæki stofnað árið 2017 til að ýta undir hönnun og framleiðslu sem styður sjálfbærni og hringrás hráefna auk þess að vera stökkpallur fyrir íslenska hönnuði á erlendri grundu. Vörur fyrirtækisins eru hannaðar eftir sérstökum skilyrðum þar sem meðal annars eru einungis notuð náttúruleg og endurunnin hráefni. Sýn FÓLKs er að auðvelda einstaklingum og fyrirtækjum sjálfbærari lífsstíl.

Gunnar Magnússon, heiðurverðlaunahafi Hönnunarverðlauna Íslands 2021. Mynd/Aldís Pálsdóttir

Tengt efni

  • Heiðursverðlaunahafi Hönnunarverðlauna Íslands árið 2021 er Gunnar Magnússon, húsgagnahönnuður og innanhússarkitekt

  • Hönnunarverðlaunum Íslands 2021 fagnað í Grósku

  • Samtal um framtíð byggða á hönnun, hugviti og nýsköpun

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Hönnunarverðlaun Íslands
  • Vöruhönnun
  • Húsgögn

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200