Frumsýning vörulínunnar BAÐ í Epal Skeifunni
Vörulínan BAÐ verður frumsýnd í dag í Epal Skeifunni, miðvikudaginn 27. nóvember milli klukkan 17:00 – 19:00. BAÐ - íslensk baðmenning í hávegum höfð.
Hönnuðir verða á staðnum og kynna BAÐ vörulínuna, en það eru Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir fyrir vörumerkið IHANNA HOME, Margrét Jónsdóttir leirlistakona, Unnur Valdís Kristjánsdóttir fyrir vörumerkið Flothettu og Sóley Elíasdóttir fyrir vörumerkið SÓLEY sem eru hönnuðirnir á BAÐ vörulínunni.
Dagskrá:
17:15 Lýsing á BAÐ og ferlinu hvernig þetta fór af stað og hvernig þetta hefur þróast. Baksaga verkefnisins, tilvist Epal Design og metnaður þess og ásetningur. Samhengi hlutanna útskýrt og framtíðar hugsjónir teiknaðar. Hönnuðir kynntir og þeirra verkum lýst og spurningum svarað.
18:00 Dregið í leik þar sem 2 heppnir gestir fá gjafakörfu með hlutum úr BAÐ línunni.
19:00 Viðburði lýkur.
Epal hefur frá byrjun verið leiðandi afl í stuðningi við íslenska hönnun og hefur Epal Design framleitt úrval íslenskrar hönnunar í náinni samvinnu við vel valda hönnuði. Markmið Epal Design er að framleiða vandaða, tímalausa og stílhreina hönnun með umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Áhersla er lögð á íslensk stílbrigði, fágun og gæði.
Baðmenning okkar er á svo margan hátt einstök og allir íslendingar tengja við hana. Heita vatnið okkar er mikilvæg náttúruauðlind og í raun ótrúleg hversdagsgæði að hafa aðgengi að henni. Það er gott fyrir sál og líkama að njóta þessara náttúrugjafar, hvort sem er í sundlaugum, heilsulindum eða heima.
Sumarið 2023 hófst samtal með sérhæfðum hönnuðum sem þekkja málaflokkinn vel og vöruþróun hefur staðið yfir sleitulaust síðan. Forkynning var á Hönnunarmars 2024 og nú er komið að því að bjóða vörurnar til sölu.
Vörulína BAÐ inniheldur nytjahluti fyrir baðherbergið, bæði harðir og mjúkir, þar má nefna sápur og krem auk baðsalts, ilms og kerta, handklæði, baðsloppur, snyrtitaska og sundtaska.
Nánar um hönnuðina á BAÐ vörulínunni;
Margrét Jónsdóttir er þekkt leirlistakona sem hefur unnið mikið með íslenska náttúru og hennar hönnun einkennist af leik með leir, glerung, form og áferð.
Unnur Valdís er hönnuður Flothettunar og hefur skapað frjótt samfélag sem stundar flot víðsvegar um landið sem hefur róandi og sefandi áhrif í heimi álags og spennu.
Ingibjörg Hanna er grafískur hönnuður sem hefur tekið ástfóstri við textíl. Hún blandar saman grafískum formum við áferð textílsins og endurskapar landslag Íslands á einfaldan og stílhreinan hátt.
Sóley vinnur með aldagamlar hefðir í nútíma samhengi og innvefur þær í vörur sínar. Íslenskar jurtir eru undirstaðan hjá Sóleyju í þróun hennar á sápum, kremum og bað söltum.