Kallað eftir greinum, útdráttum og ritgerðum-UIA 2023
Stærsta arkitektaráðstefna í heimi, UIA heimsráðstefnan, óskar eftir greinum, útdráttum og ritgerðum fyrir ráðstefnuna sem haldin verður í Kaupmannahöfn í júlí á næsta ári. Þetta er í fyrsta sinn sem ráðstefnan er haldin á Norðurlöndunum en áætlað er að um 10.000 arkitektar víðsvegar að úr heiminum mæti á ráðstefnuna.
Þema ráðstefnunnar er Sjálfbær framtíð fyrir alla (Sustainable future-leave no one behind) og er óskað eftir rituðu efni í þessu þema. Fræðimenn, starfandi arkitektar og nemendur allsstaðar úr heiminum er nú hvattir til að koma með hugmyndir að lausnum gagnvart þeim áskorunum sem við stöndum frammi til að ná settum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Óskað er eftir fjölbreyttu rituðu efni, bæði klassískum fræðiritum og útdráttum en eins er opið fyrir ritgerðum. Höfundum samþykktra greina verður boðið á ráðstefnuna til að halda erindi.
Allar frekari upplýsingar eru í hlekk hér fyrir neðan. Við hvetjum alla áhugasama til að taka þátt.