Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

HA 09 komið út í nýju útliti eftir StudioStudio

12. júní 2019
Ritstjórn HA, María Rán Guðjónsdóttir, Garðar Snæbjörnsson, Þorleifur Gunnar Gíslason og María Kristín Jónsdóttir, ritstjóri.Myndir: Eyþór Árnason

Níunda tölublað HA, rit um íslenska hönnun og arkitektúr sem Hönnunarmiðstöð Íslands gefur út tvisvar ári, er komið út. Um að ræða vandað rit, á íslensku og ensku, sem höfðar til jafns til fagfólks og áhugafólks um hönnun og arkitektúr og gefur innsýn inn fjölbreytt verkefni og sýnir gróskuna sem er í þessum geira hér á landi um þessar mundir.

Í þessu níunda tölublaði, sem er í glænýju útliti eftir hönnunarteymið StudioStudio, er meðal annars er skyggnst inn í heim hönnunar, matar og hnattvæðingar í gegnum verkefnið Banana Story eftir Johönnu Seelemann og Björn Steinar Blumenstein, arkitektarnir Bergur Finnbogason hjá CCP og Space Popular færa lesendur inn í heim sýndar- og viðbætts veruleika og framtíðarfræðingurinn Helga Jósepsdóttir segir frá því hvernig hægt sé að hanna framtíðina.

Gunnar Vilhjálmsson og Kalapi Gajjar-Bordawekar hjá letursmiðjunni Universal Thirst segja frá indverskri og arabískri týpógrafíu, fata- og textílhönnuðurinn Helga Lára Halldórsdóttir útskýrir hvernig það sem hún kallar „rýmisgreind vandræðaleikans“ varð að fatalínu. Þá deilir Philip Fimmano tísku- og lífsstílssérfræðingur hugleiðingum sínum, leirlistakonan og hönnuðurinn Kristín Sigfríður Garðarsdóttir segir frá ferlinu bakvið nýafstaðna einkasýningu sína í Hafnarborg og arkitektinn Rafael Pinho skrifar um krosslímt timbur (KLT) og möguleika í íslenskri skógrækt.

Allt þetta og miklu meira í nýjasta tölublaði HA - ekki gleyma að tryggja þér eintak inn í sumarið!

Tengt efni

  • Útgáfugleði HA10

  • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr

  • Morra opnar lifandi vinnustofu í Hönnunarsafni Íslands

Dagsetning
12. júní 2019

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • HA09
  • Íslensk hönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200