Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

HA10 er komið út

HA10 – Product picture of HA, Issue no. 10 published in November 2019.

Útgáfa 10. tölublaðs HA markar fimm ára afmæli tímaritsins sem eru merk tímamót í útgáfu fagrita um íslenska hönnun og arkitektúr.

Meðal efnis er umfjöllun um Hönnunarverðlaun Íslands 2019, þar á meðal viðtal við vinningshafana hjá Genki Instruments, heiðursverðlaunahafann Manfreð Vilhjálmsson arkitekt og Omnom sem hlaut viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun. Þá svarar fagfólk úr vöru- og iðnhönnunargeiranum áleitnum spurningum og veltir fyrir sér hlutverki hönnunar og styrkleikum á umbreytingatímum. Bára Hólmgeirsdóttir í Aftur, sem nýverið hlaut tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs, talar tæpitungulaust um textílsóðaskapinn og vitundarvakningu hönnuða og neytenda. Búi Bjarmar Aðalsteinsson hönnuður hjá Grallaragerðinni og Eva Bjarnadóttir sérfræðingur hjá Unicef segja frá því hvernig mannmiðuð hönnun nýtist til að bæta móttöku barna á flótta.

Eigendur hönnunarstofunnar Kolofon segja frá aðferðafræði og verkefnum sínum sem mörg hver hafa víða snertifleti við samfélagið og rithöfundurinn Auður Jónsdóttir skrifar um hið sístækkandi samfélag í kringum flothettuna. Landslagsarkitektar hjá Landmótun og borgarhönnuður hjá Reykjavíkurborg ræða um enduruppbyggingu í miðborgarinnar og Guðmundur Oddur Magnússon skrifar um íslenskan sjónarf. Fyrsti hönnuður HA, grafíski hönnuðurinn Hrefna Sigurðardóttir, stýrir myndaþætti og forsíðu í samstarfi við Axel Sigurðarson ljósmyndara. Allt þetta og margt fleira í nýjasta tölublaði HA sem fæst í öllum helstu hönnunar- og bókaverslunum landsins. 

Panta HA10
Gerast áskrifandi HA

Tengt efni

  • EMERGENEERS for humanity

  • Stikla - Morra

  • Þeir afla sem sækja á skapandi mið

Höfundur
María Kristín Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • HA
  • 10.tölublað
  • Issue 10
  • HA10

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200