Hönnunarhugsun - Rafrænn hádegisfyrirlestur VR

Fimmtudaginn 21. október, milli kl. 12-13, fer fram rafrænn hádegisfyrirlestur þar sem Hlín Helga Guðlaugsdóttir, upplifunarhönnuður, verkefnastjóri hjá Gagarín og stjórnandi DesignTalks fjallar um hönnunarhugsun (e. Design Thinking).
Hönnunarhugsun (e. Design Thinking) er aðferðafræði fyrir skapandi nálgun á fjölbreytt viðfangsefni þar sem fólk, þarfir þess og upplifanir eru í fyrirrúmi. Þessi nálgun hentar vel til úrbóta t.d. á þjónustu, í nýsköpun og stafrænni þróun. Í þessum fyrirlestri verður veitt innsýn í aðferðafræðina og dæmi tekin úr íslenskum veruleika en fjölmörg fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar hafa tileinkað sér Design Thinking með góðum árangri á síðustu árum.
Hlín Helga Guðlaugsdóttir er upplifunarhönnuður og verkefnastjóri hjá Gagarín. Hún er með víðtæka reynslu sem ráðgjafi fyrirtækja og stofnana á Íslandi. Hún hefur einnig starfað sem kennari í háskólum víða um heim, sýningastjóri og listrænn stjórnandi. Hún er einnig stjórnandi alþjóðlegu ráðstefnunnar og lykilviðburði HönnunarMars, DesignTalks.
Fyrirlesturinn verður einungis aðgengilegur rafrænt. Honum verður streymt á auglýstum tíma, opinn út daginn á hlekknum en fer svo inn á Mínar síður VR og verður þar aðgengilegur í sjö daga.