HönnunarMars 2020 fer fram dagana 24.-28. júní
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/fcd1409e-15d9-4ac3-bf03-e9384edd8864_ani-CC-81ta_1500_cropped.jpg?auto=compress,format&rect=165,0,1172,660&w=1500&h=845)
Í ljósi fordæmalausra aðstæðna hefur stjórn og stjórnendur HönnunarMars ákveðið að færa hátíðina til sumar en hátíðin fer fram dagana 24.-28 júní næstkomandi.
Ákvörðunin er tekin að vel í grunduðu máli og í samtali við þátttakendur og samstarfsaðila. Það er forgangsatriði að allir leggist á eitt við að hefta frekari útbreiðslu veirunnar sem nú herjar á samfélagið. HönnunarMars er 12 ára hátíð sem fæddist í miðju hruni og hefur því frá upphafi verið boðberi bjartsýni, nýsköpunar og nýrra leiða.
Hann mun því koma inn með krafti, veita innblástur, gleði og varpa ljós á kraumandi skapandi kraft hönnunarsamfélagsins hér á landi. Það eru bjartari tímar framundan, mætum tvíefld til leiks með hækkandi sól! Sjáumst á HönnunarMars dagana 24.-28. júní!
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/f6c9f9dd-0dea-4290-875b-e704250f9016_designtalks-1-_1500_cropped.jpg?auto=compress,format)
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/7f3267f3-1913-4acd-951f-9d9dd9a12fa2_screen-shot-2019-07-08-at-10.37.20_1500_cropped+%281%29.png?auto=compress,format)
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/03f6e89d-9721-493c-8ef5-2c33bd20f487_best-of-day-1-geysir-_1500_cropped.jpg?auto=compress,format)
![](https://scontent-iad3-1.cdninstagram.com/v/t51.2885-15/sh0.08/e35/s640x640/89368343_542059799755243_1110630196963175368_n.jpg?_nc_ht=scontent-iad3-1.cdninstagram.com&_nc_cat=107&_nc_ohc=tcZC7abTKL0AX9fT3o2&oh=c9bb3f4b77bfff56ebccaebb333651dd&oe=5EA5ADB5)
DESIGNMARCH IN JUNE!
Nýjar dagsetningar HönnunarMars 2020 - sjáumst hress 24.-28. júní !
//
New dates for DesignMarch 2020 - see you in Reykjavík 24th - 28th of June !
#designmarch #designtalks #honnunarmars #icelandicdesign #icelanddesigncentre #reykjavik #iceland