Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

HönnunarMars fyrir mataráhugafólk

Ljósmynd: Sunna Ben fyrir Pítsustund með Fléttu og Ýrúarí

HönnunarMars er rétt handan við hornið en hátíðin fer fram dagana 3. til 7. maí nk. og breiðir úr sér um alla borg. Rúmlega 100 sýningar og 120 viðburðir eru á dagskrá í ár og því ættu öll að finna eitthvað við sitt hæfi.

Hefur þú sérstakan áhuga á matargerð, óvenjulegum hráefnum og óvæntum uppskriftum? Ertu að leita að heitustu pítsunni, nýstárlegasta bjórnum eða sjaldgæfasta sveppnum? Hér að neðan eru nokkrir viðburðir sem gætu fallið fullkomlega að þínu smekk.

Pása

Pásum lífið, pásum sjálfið, pásum hraðann. Höfuðstöðvum Lady Brewery verður breytt í upplifunarbar fyrir HönnunarMarsbjórinn 2023. Náttúruleg undarlegheit og stórkostleg sirkusdýr! Komdu í pásu.

Sérstök upplifunar-pásu-bars-búninga-partý-pása fer fram laugardaginn 6. maí frá kl. 20:00 - 00:00.

Pása

Pítsustund með Fléttu og Ýrúarí

Flétta og Ýrúrarí opna pítsustað í Gallerí Port á meðan HönnunarMars stendur yfir þar sem boðið verður upp á þæfðar pítsur úr ullarafgöngum frá íslenskum ullariðnaði. Sviðsmynd viðburðarins byggist í kringum nálaþæfingarvél sem sett er í hlutverk pítsuofns en hönnuðurnir bregða sér í hlutverk bakara og afgreiðslufólks.

Pítsustund með Fléttu og Ýrúarí

Uppspretta

Uppspretta er samvinnuverkefni Bjarna Sigurðsson og Áslaugar Snorradóttur í Vest. Sýningin samanstendur af grófum og mjúkum handgerðum kökudiskum og skálum á fæti úr smiðju Bjarna, sem Áslaug veitir líf á einstakan máta. Veisluáhugafólk ætti ekki að láta opnunarhóf sýningarinnar fram hjá sér fara en það verður haldið fimmtudaginn 4. maí frá kl. 16 - 19.

Uppspretta

Varðveisla hjá Sónó

Vantar þig hið fullkomna ílát undir súrdeigsmóður þína? Varðveisla er vörulína með ílátum úr steinleir sem auðvelda matargerð með náttúrulegum aðferðum þar sem örverur eru við stjórn. Sýningin fer fram á veitingastaðnum Sónó í Norræna húsinu.

Varðveisla hjá Sónó

sveppurinn fer í gang

Þér er boðið að skyggnast inn í hugarheim villisveppaveiðamannsins. Verkefnið endurspeglar lífstíl villisveppaveiðimannsins með fagurfræði íslenskra villisveppa í fyrirrúmi. Hver hlutur uppfyllir þörf villisveppaveiðimannsins til að lifa í hugarheimi sínum utan vertíðar. Sýningin fer fram í Gróðurhúsinu á Lækjartorgi.

sveppurinn fer í gang

Kynntu þér alla dagskrá HönnunarMars 2023

HönnunarMars fer fram dagan 3. - 7. maí 2023. Um 100 sýningar og 120 viðburðir eru á dagskrá í ár og því af nógu að taka.

Sjáðu alla dagskránna hér

Meira um HönnunarMars

  • HönnunarMars fyrir upplifun og innblástur

  • Hvað nú? Dagskrá HönnunarMars 2023 er komin í loftið

  • Hvað nú? DesignTalks 2023

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • HönnunarMars
  • HA
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200