Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hvað nú? DesignTalks 2023

4. apríl 2023

DesignTalks 2023 leitar svara við þessari spurningu með áhrifamiklum erindum frá fjölbreyttum hópi hönnuða, arkitekta og listamanna sem nálgast núið og framtíðina á skapandi hátt.

Heilandi hönnun, hönnun sem byggir á samstarfi við bakteríur, nýsköpun hráefna, hönnun sem tekst á við erfiðar aðstæður á stríðssvæðum, róttækur landslagsarkitektúr með villta náttúru í forgrunni, þverfagleg hönnun með áherslu á leikgleði og samveru, valdeflandi hönnun sem vekur von og ögrandi arkitektúr er meðal þess sem tekið verður fyrir.

DesignTalks varpar ljósi á mikilvægi hönnunar og arkitektúrs í samfélagslegum og hnattrænum breytingum og tekst á við áskoranir og tækifæri líðandi stundar. Við lifum á elleftu stundu og ákall eftir sjálfbærum lausnum er hávært. Í skugga mistækra tilrauna til aðgerða í loftslagsmálum, pólitísks óstöðugleika og eftirmála heimsfaraldurs, spyrjum við: hvað nú?

Núið er snúið en svörin eru uppfull af von. Þau bera þess glöggt merki hversu mikill máttur skapandi hugsunar er, líka þegar á reynir.

Hlín Helga, listrænn stjórnandi DesignTalks

Deginum verður skipt upp í fjóra hluta sem taka á spurningu dagsins með ólíkum hætti.

Hluti I: Hvað nú? Tölum um sköpunarkraftinn

Frammi fyrir hamfarahlýnun og stríðsástandi spyrjum við hvernig hægt sé að láta reyna á sköpunarkraftinn núna? Við skoðum dæmi um hönnuði sem tekst á við erfiðar aðstæður á stríðshrjáðum svæðum, listamann sem nálgast brýnar loftslagsáskoranir og könnum eðli sköpunarkraftsins sjálfs. Hvernig getum við hvatt til hugrekkis og vakið von með hönnun? Hvernig fáum við fólk til liðs við móður náttúru?

Hluti II: Hvað nú? Tölum um grunnþarfirnar

Fleira og fleira fólk á í erfiðleikum með að sinna grunnþörfunum, hefur skert aðgengi að mat og skjóli og náttúruauðlindir fara þverrandi. Við spyrjum: hvað nú? Felst lausnin í að umbreyta úreltum kerfum? Nýsköpun hráefna? Hvernig á að byggja og endurbyggja fyrir alla? Og framleiða föt og vörur á siðferðilegan og sjálfbæran hátt?

Hluti III: Hvað nú? Tölum um lífið

Heimurinn er að jafna sig eftir heimsfaraldur sem hafði varanleg áhrif á heilsu margra og einmanaleika en mögulega einnig á viðhorf til þess sem raunverulega skiptir máli. Í þriðja hluta er fjallað um heilsu og annars konar auð. Hvað nú? Hönnun heilandi umhverfis? Borgarlandslag þar sem náttúran gegnir lykilhlutverki?  Hvernig hönnum við af virðingu, fyrir jafnrétti, þátttöku og inngildingu fyrir öll? Hvert er gildi hönnunarhugsunar við endurhönnun lífsins? 

Hluti IV: Og hvað svo? Tölum um sögur

Fjórði og síðasti hluti dagsins fjallar um framtíðina, sem er óvissari og opnari en nokkru sinni fyrr. Við spyrjum hver ætli að skapa hana? Skoðum frásagnaraðferðir þvert á miðla sem eitt öflugasta verkfæri hins skapandi huga og tengsl náttúru, tækni og vitsmuna. Getur hönnun hjálpað okkur að njóta góðs af framförum í vísindum og tækni? Eigum við að vinna meira með bakteríum og örverum? Taka stjórn á sögunni, framtíðinni? Eða halla okkur aftur og láta gervigreindina gera það?

Meðal þeirra  sem koma fram á DesignTalks 2023 eru; Paula Antonelli, yfirsýningarstjóri hönnunar og arkitektúrs á MoMA, Pavel Vrzheshch, einn af stofnendum og listrænn stjórnandi úkraínsku auglýsingastofunnar Banda,Odile Decq, arkitekt og borgarskipulagsfræðingur, Natsai Audrey Chieza, lífhönnnuður, framkvæmdarstjóri og stofnandi Faber Futures, Paul Veenstra, landslagsarkitekt og annars stofnandi LOLA landscape Architects, Sigríður Sunna Reynisdóttir, listrænn stjórnandi og stofnandi ÞYKJÓ, Michael Hendrix, alþjóðlegan hönnunarstjóra og meðeiganda IDEO og Thomas Pausz, hönnuður, listamaður og rannasakandi.

Fylgstu með þegar við höldum áfram að kynna spennandi fyrirlesara sem taka þátt í DesignTalks 2023 á næstu dögum, degi fullum af innblæstri og áhugaverðum samtölum um áskorun og lausnir líðandi stundar.

DesignTalks 2023 er m.a. styrkt af Nordic Talks.

Tryggðu þér miða á DesignTalks

Ekki missa af stærsta og skemmtilegasta hönnunarviðburði ársins.

Miðasala hér

Fyrirlesarar á DesignTalks 2023

  • DesignTalks 2023 - Paola Antonelli, yfirsýningarstjóri arkitektúrs og hönnunar hjá MoMA, framleiðandi MoMA Salon R&D og stofnandi Design Emergency

  • DesignTalks 2023 - Odile Decq, arkitekt og borgarskipulagsfræðingur

  • DesignTalks 2023 - Pavel Vrzheshch, stofnandi og listrænn stjórnandi úkraínsku auglýsingastofunnar Banda

  • DesignTalks 2023 - Sigríður Sunna Reynisdóttir, stofnandi og listrænn stjórnandi ÞYKJÓ

  • DesignTalks 2023 - Peter Veenstra, landslagsarkitekt og einn stofnandi LOLA Landscape Architects

  • DesignTalks 2023 - Natsai Audrey Chieza, stofnandi og framkvæmdarstjóri Faber Futures

  • DesignTalks 2023 - Michael Hendrix, alþjóðlegur hönnunarstjóri og meðeigandi IDEO

  • DesignTalks 2023 - Thomas Pausz, hönnuður, listamaður og rannsakandi

Dagsetning
4. apríl 2023

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Fagfélög
  • HönnunarMars
  • DesignTalks
  • HA

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200