Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hringrás inniveggja

9. ágúst 2024

Á Íslandi hefur mikill fjöldi byggingarframkvæmda í för með sér samsvarandi áskoranir í úrgangsmyndun, kolefnisspori og umhverfisáhrifum. Í dag er talsverður fjöldi bygginga rifinn og við það myndast mikið magn úrgangsbyggingarefna, auk þess sem stórir úrgangsstraumar í íslensku samfélagi eru ekki í virkri hringrás í dag.

Hringrásarhagkerfi er hagkerfi sem býður upp á sjálfbæra nálgun með því að lágmarka sóun og endurnýta auðlindir. Í stað hefðbundins línulegrar framleiðslu leggur hringrásarhagkerfið áherslu á að lágmarka auðlindanotkun með því að endurnota, endurnýta, endurvinna og lengja líftíma vöru, efna og auðlinda. Þetta dregur ekki aðeins úr sóun heldur opnar einnig ný tækifæri, sem stuðla að aukinni skilvirkni, verðmæta- og nýsköpun. Í dag eru mörg spennandi verkefni í gangi til þess að koma fleiri efnum á Íslandi í virka hringrás.

Eitt þessara verkefna er Hringrásarveggur sem fékk styrk úr Hringrásarsjóði Umhverfis-, orku- og loftslags ráðuneytisins sumarið 2022. Að verkefninu stóðu EFLA verkfræðistofa, Basalt arkitektar og Jáverk verktakar. Markmið verkefnisins var að hanna léttan innvegg úr úrgangsefnum. Innvegg sem stæðist allar tæknilegar kröfur sem gerðar eru til innveggja á Íslandi án þess að vera of dýr og flókinn í uppsetningu, og að möguleiki væri á fjöldaframleiðslu. Einnig var lögð sérstök áhersla á að veggurinn væri hannaður þannig að hægt væri að taka hann niður og breyta um staðsetningu á honum án þess að byggingarefnin myndu verða fyrir skemmdum. Hringrásarveggurinn er því hannaður sem sveigjanleg lausn og byggingarefnið sem er notað er á að geta nýst áfram og haldist í hringrásinni. Góð innivist er nauðsynleg og því var einnig markmið við hönnun veggjarins að forðast efni sem gætu innihaldið myglugró eða önnur skaðleg efni.

Algeng dæmi um innveggi á Íslandi í dag eru gifsveggir á stál- eða timburgrind, hlaðnir veggir úr vikur- eða léttsteypu og timburveggir úr CLT eða timburgrind. Oft er erfitt að endurvinna slíka veggi, en gifs er erfitt að endurnota og endurvinna, og enginn farvegur fyrir það til í dag á Íslandi. Hlaðnir veggir eru múraðir og ekki auðveldir að endurnota, endurvinnsla er takmörkuð en þó möguleg. Timburveggi er hægt að endurnota en oft eru lím og önnur efni notuð í samsetningu veggjanna sem takmarka beina endurnotkun, endurvinnsla er möguleg.

Úrgangastraumar á Íslandi voru kortlagðir meðal annars í gegnum samtöl við fyrirtæki með framleiðsluferli hér á landi og fyrirtæki sem meðhöndla úrgang. Í verkefninu voru forhannaðir þrír innveggir, einn úr úrgangspappaplötum, einn úr úrgangsgleri og einn úr úrgangssteypu. Það var Anders Vange, hjá Reykjavík Glass sem var samstarfsaðili verkefnisins við hönnun glerveggs, en Reykjavík Glass er í dag að endurvinna gler úr drykkjarumbúðum á ýmsa vegu. Sighvatur Lárusson hjá Circula var samstarfsaðili við hönnun pappaveggsins og Steypustöðin og Georosion, varðandi steypuvegginn.

Niðurstöður verkefnisins eru núna aðgengilegar í tveimur skýrslum sem má finna hér, á heimasíðu Hringvangs. Hringvangur er vettvangur stofnaður sem hluti af Nordic Networks for Circular Construction (NNCC) verkefninu, sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun ásamt Grænni byggð hafa umsjón með á Íslandi.

Það er gríðarlega mikilvægt að henda ekki verðmætum efnum, heldur finna skynsamlega og góða farvegi fyrir alla efnisstrauma. Niðurstöður verkefnisins voru mjög áhugaverðar og lofandi fyrir næstu skref í markvissari framleiðslu og nýtingu á nýjum sveigjanlegum byggingareiningum úr úrgangs hráefni. Með slíkri nýtingu má draga verulega úr umhverfisáhrifum frá framleiðslu byggingarefna.

Endurunnið gler og glerbræðslu má sjá á mynd 1 og á mynd 2 er skýringarmynd varðandi framleiðsluferli fyrir endurnýtta steypukubba.

Perla Dís Kristinsdóttir, arkitekt
Elín Þórólfsdóttir, arkitekt og umhverfis- og auðlindafræðingur
Þórdís Ólöf Sigurjónsdóttir, arkitekt og umhverfissiðfræðingur
Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, verkfræðingur

Grein sem birtist á visir.is föstudaginn 9. ágúst 2024.

Tengt efni

  • Endurmenntun LBHÍ með námskeið í skipulagsfræði og landslagsarkitektúr

  • Opið fyrir umsóknir um listamannalaun 2025

  • Viltu verða matsmaður? Námskeið í október.

Dagsetning
9. ágúst 2024
Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200