Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Opið fyrir umsóknir um listamannalaun 2025

7. ágúst 2024

Opið er fyrir umsóknir til listamannalauna 2025. Tilgangur listamannalauna er að efla listsköpun í landinu.  Opið er fyrir umsóknir til kl. 15:00, 1. október 2024. 

Listamannalaun eru fyrir sjálfstætt starfandi hönnuði, myndlistarmenn, rithöfunda, sviðslistafólk, tónlistarflytjendur,  tónskáld og kvikmyndahöfunda.Samkvæmt lögum um listamannalaun eru til úthlutunar 1720 mánaðarlaun, 143,3 árslaun: 

  • 50 mánuðir úr launasjóði hönnuða og arkitekta, 4,2 árslaun 
  • 435 mánaðarlaun úr launasjóði myndlistarmanna, 36,3 árslaun 
  • 555 mánaðarlaun úr launasjóði rithöfunda, 46 árslaun 
  • 190 mánaðarlaun úr launasjóði sviðslistafólks, 15,8 árslaun 
  • 180 mánaðarlaun úr launasjóði tónlistarflytjenda, 15 árslaun 
  • 190 mánaðarlaun úr launasjóður tónskálda, 15,8 árslaun 
  • 60 mánaðarlaun úr launasjóði kvikmyndahöfunda, 5 árslaun 
  • 60 mánaðarlaun úr Vegsemd, sjóði fyrir listamenn 67 ára og eldri, 5 árslaun 

 

Í umsóknum er óskað eftir: 

  • Lýsingu á vinnu og listrænu gildi verkefna (50% vægi) 
  • Ferli umsækjenda (30% vægi) 
  • Verk- og tímaáætlun (20% vægi) 

 
Umsóknir eru einstaklingsumsóknir og nota þarf rafræn skilríki við gerð þeirra. Ef við á þarf að tilgreina umsóknarnúmer samstarfslistamanna í umsóknum. 

Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu/lokaskýrslu hefur verið skilað sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009. Skýrslur eru á „mínum síðum“ umsækjenda. 

Listamenn eru hvattir til að skila umsóknum tímanlega en umsóknarfrestur rennur út kl. 15:00, þann 1. október 2024. 

Vefur listamannalauna

Á vef listamannalauna er umsóknarform, matskvarði, áherslur stjórnar, lög og reglugerð og leiðbeiningar um gerð umsókna og skýrslna.  Fyrirspurnir: listamannalaun@rannis.is eða í síma 515 5839 / 515 5838

Ýttu hér

Áherslur stjórnar listamannalauna fyrir úthlutun 2025 

 
Listsköpun í forgrunni

Stjórn listamannalauna leggur áherslu á að vinna og verkefni til grundvallar umsóknar um starfslaun sé í forgrunni við mat á umsóknum um starfslaun. 

Matskvarðinn sem notaður er við úthlutun endurspeglar þá áherslu og vegur lýsing á vinnu og verkefni 50%, ferill listamanns 30% og verk- og tímaáætlun 20%. 

 

 Fjölbreytni og nýliðun

Stjórn listamannalauna leggur áherslu á að úthlutanir endurspegli þá fjölbreyttu flóru listafólks og listsköpunar sem blómstrar á hverjum tíma. 

Til að tryggja eðlilega nýliðun skal úthluta að lágmarki 7% mánaða hvers sjóðs til nýliða. Nýliðar teljast listamenn sem aldrei hafa fengið úthlutun og listamenn sem hafa fengið allt að þriggja mánaða úthlutun einu sinni. Áhersla á nýliðun mun aukast á næstu árum með auknum fjölda mánaða til úthlutunar og verða 10% fyrir úthlutun ársins 2028.  

 

Lengd listamannalauna 

Stjórn listamannalauna mælist áfram til þess að almennt séu ekki veittir fleiri en 12 mánuðir í senn (gæti komið til endurskoðunar á næstu árum þegar mánuðum til úthlutunar fjölgar). Úthlutanir til styttri tíma en 6 mánaða skulu ekki vera skemmri en til 3 mánaða og mega ekki fara yfir 10% mánaðarfjölda hvers sjóðs, fyrir utan samstarfsúthlutanir til tónlista- og sviðslistahópa. Æskilegt er að umsóttur fjöldi listamannalauna sé í samræmi við lengd listamannalauna samkvæmt 12. grein laga um listamannalaun.  

  

Sýnileiki listamannalauna 

Launþegum sjóðsins ber að geta þess við birtingu umsóknaverka sinna að þeir hafi notið listamannalauna. Merki listamannalauna er að finna hér.  

Tengt efni

  • Opið fyrir umsóknir í Hönnunarsjóð

  • Hönnunarverðlaun Íslands 2024 - opið fyrir ábendingar

  • Arnhildur Pálmadóttir tilnefnd til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2024

Dagsetning
7. ágúst 2024
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200