Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hönnunarverðlaun Íslands 2024 - opið fyrir ábendingar

2. júlí 2024

Opið er fyrir ábendingar til Hönnunarverðlauna Íslands 2024 og hægt er að benda á eigin verk eða annarra til miðnættis 4. september. Markmiðið með ábendingum er að tryggja að afburða verk fari ekki fram hjá dómnefnd og því hvetjum við eigendur góðra verka til þess að tilnefna eigin verk. 


Hönnunarverðlaun Íslands verða veitt í ellefta sinn í ár og eru veitt í þremur flokkum: Vara // Staður // Verk. 

Dómnefnd tilnefnir þrjú verkefni í hverjum flokki og af þeim hlýtur einn sigurvegari í hverjum flokki Hönnunarverðlaun Íslands 2024 sem eru hvoru tveggja heiðurs- og peningaverðlaun.

Flokkar Hönnunarverðlauna Íslands:

Vara no. kvk. varningur sem er framleiddur og gengur kaupum og sölum*
Með verðlaunaflokknum vara er kallað eftir framúrskarandi hönnuðum verkefnum sem hafa verið framleidd. Til greina koma margvíslegir hlutir úr ólíkum efnum, flíkur, húsgögn, prentgripir, leir, textíll, skart eða þjónusta.

Staður no. kk. staðsetning í rúmi þar sem eitthvað er*
Með verðlaunaflokknum staður er kallað eftir framúrskarandi hönnuðum verkefnum sem eiga sér sinn stað í rúmi. Til greina koma fjölbreytileg rými, byggingar, hverfi, torg, garðar og áningarstaðir. 

Verk no. hk. eitthvað sem unnið er eða framkvæmt, viðfangsefni, iðja*
Með verðlaunaflokknum verk er kallað eftir framúrskarandi hönnuðum verkefnum sem hafa verið framkvæmd. Til greina koma margvíslegar hugmyndir, miðlun, upplifun, sýningar og lausnir.

*Íslensk nútímamálsorðabók. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

Sendu inn ábendingu til Hönnunarverðlauna Íslands 2024

Hægt er að benda á eigin verk og verk annarra til miðnættis miðvikudaginn 4 september. Vinningshafar geta komið úr öllum greinum hönnunar.


*Vinsamlegast athugið að innskráning í kerfi er hvorki rekjanleg né sýnileg dómnefnd og hver sem er getur sent inn ábendingu. 

Ýttu hér

Hönnunarverðlaun Íslands eru veitt hönnuði, arkitekt, hönnunarteymi eða stofu fyrir framúrskarandi nýleg verkefni. Við val á verðlaunahöfum er verið er að leita að verkefnum sem skara fram úr og geta staðið sem fulltrúar þess besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs. Verkefnin þurfa að endurspegla gæði og vera áhrifarík, fela í sér frjóa hugsun, snjalla lausn, vandaða útfærslu, áherslu á fagurfræði og fagmennsku í vinnubrögðum. Einnig er horft til hvort verkefnin séu notendavæn, nýskapandi og hafi jákvæð áhrif á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni.  

Að auki verða veitt Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun. 

Besta fjárfesting í hönnun er viðurkenning veitt fyrirtæki sem hefur hönnun og arkitektúr að leiðarljósi í starfsemi sinni til að auka gæði, verðmætasköpun og samkeppnishæfni. Öll fyrirtæki sem starfa á Íslandi koma til greina.

Heiðursverðlaun er viðurkenning veitt einstaklingi sem hefur náð einstökum árangri í starfi, verið mjög áhrifamikill á sínu fagsviði eða hefur skilað framúrskarandi ævistarfi á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi. 

Hönnunarverðlaun Íslands 2024 fara fram þann 7. nóvember í Grósku.

Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt. 

Hönnunarverðlaun Íslands beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning.


Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Samtök iðnaðarins og Grósku.

Frá Hönnunarverðlaunum Íslands 2023. Framleiðsla og klipping: Arnar Tómasson/Eldey Films

–

Tengt efni

  • Hönnunarverðlaun Íslands

  • Pítsustund er Verk ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2023

  • Edda, hús íslenskunnar er Staður ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands

  • Loftpúðinn er Vara ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2023

  • Sigrún Guðjónsdóttir „Rúna” hlýtur heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands 2023

  • Angústúra hlýtur viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun 2023

Dagsetning
2. júlí 2024
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Fagfélög
  • Hönnunarverðlaun Íslands

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200