Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Lumar þú á mjúkri og hlýrri hugmynd? Stafrænt Ullarþon vorið 2021

1. mars 2021

Textílmiðstöð Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands halda Ullarþon dagana 25. - 29. mars. Verkefnið er styrkt af Framleiðnisjóði Landbúnaðarins. Um er að ræða nýsköpunarkeppni haldin á netinu til að ýta undir nýsköpun og vöruþróun, auka verðmæti ullarinnar og þá sérstaklega verðminnstu ullarflokkanna. 

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  1. Þróun á vinnslu textíls úr óunninni ull
  2. Blöndun annarra hráefna við ull
  3. Ný afurð
  4. Stafrænar lausnir og rekjanleiki. 

Ullarþonið er opið öllum.

Skráning hefst í dag, 1. mars. Hægt er að taka þátt hvort heldur sem einstaklingur eða í teymi, eða mynda teymi á Facebookar síðu Ullarþonsins. Þátttakendur hafa aðgang að breiðum hóp leiðbeinenda á meðan Ullarþoninu stendur. Heppilegt er að fólk með ólíka kunnáttu vinni saman til að auka möguleika á lausnum. 

Lokaskil á hugmyndum er þann 29. mars. Dómnefnd mun þá meta hugmyndir og tilkynna um miðjan apríl hver mun vera í topp 5 í hverjum flokki. Úrslit verða kynnt á Hönnunarmars 2021.

Heildarverðmæti vinninga eru um 1.600.000 kr. 

Frá sýningu Textílmiðstöðvarinnar, Hefðbundin munstur í stafrænni framtíðá HönnunarMars í júní 2020. Mynd/Kevin Pages.

Flokkar

Þátttakendur keppa í 4 flokkum. (Hægt er að skila úrlausn í mesta lagi 2 flokka.) Í öllum flokkum er leitað eftir nýsköpun og nýtingu verðminnstu ullarflokkana.* 

1. Þróun á vinnslu textíls úr óunninni ull**

Í þessum flokki er lögð áhersla á raunhæfa lausn á hugmynd sem auka myndi verðmæti íslensku ullarinnar. Áhersla er lögð á þá verðflokka sem nú gefa minnst af sér.
Hér skiptir máli að sýnt sé fram á að lausnin búi til verðmæti til framtíðar og unnið sé með óunninni ull. 

2. Nýskapandi lausn á blöndun annara hráefna við ull 

Í þessum flokki er sóst eftir nýrri gerð eða vinnslu bands/þráðar. Hugmyndin á að auka nýtingu íslensku ullarinnar og samþættingu hennar við önnur íslensk hráefni  til textílgerðar. Í þessum flokki er jafnframt mögulegt að vinna með lífrænana textíl úr íslenskum hráefnum.
Hér skiptir máli að sýna fram á blöndun íslenskra hráefna við ullina.

3. Ný afurð

Í þessum flokki er sóst eftir hugmyndum að vöru sem byggir á íslenskum menningararfi en er jafnframt nútímaleg. Áhersla er lögð á vinnslu vörunnar með stafrænni tækni og/eða hátækni við framleiðslu textíls.
Hér skiptir máli sýna fram á nýtingu tækninnar við hönnun/framleiðslu og að varan hafi sérstöðu framyfir það sem almennt er í boði á markaði. Jafnframt er lögð áhersla á nýtingu íslensku ullarinnar sem meginhráefni.

4. Stafrænar lausnir og rekjanleiki

Í þessum flokki er leitað eftir hugmyndum til að byggja upp leiðir með stafrænum lausnum til sölu á íslenskri ull og ullarvörum. Áhersla er lögð á rekjanleika. 
Hér skiptir máli að lausnin sé stafræn með áherslu á íslensku sauðkindina og lífsferil ullarinnar.

Textílmiðstöðin - heimasíða

Hér er hægt að finna frekari upplýsingar og skráningar fyrir áhugasama og þátttakendur.

Ýttu hér
Viðburður á Facebook

Tengt efni

  • Ýrúrarí með smiðju í skapandi fataviðgerðum í Hönnunarsafni Íslands

  • Gagarín kemur að þremur nýjum sýningum í Noregi

  • Opin vinnustofa hjá M/Studio

Dagsetning
1. mars 2021
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Ullarþon
  • Textíll
  • Fatahönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200