Hvað er að frétta? Miðstöðin opnar á ný eftir sumarfrí og þétt dagskrá framundan í haust

Skrifstofa Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs er komin á fullt skrið eftir sumarfrí og framundan eru fjölmörg spennandi verkefni í haust. Hæst ber að nefna Hönnunarverðlaun Íslands, úthlutun úr Hönnunarsjóði Íslands, vinsæla fyrirlestraröðin Tölum um hönnun og arkitektúr og átakið Þetta er íslensk hönnun, auk ýmissa annarra verkefna sem verða kynnt nánar á næstu vikum.
Við spyrjum hönnuði og arkitekta landsins einnig, er eitthvað á döfinni?
- Ertu að opna sýningu?
- Ertu að hleypa af stokkunum nýrri vöru?
- Fékkstu verðlaun eða styrk?
- Ertu að fara á erlenda sýningu?
- Ertu með áhugaverða sögu sem á erindi við hönnunar- og arkitektasamfélagið?
Við sendum reglulega út fréttabréf þar sem við vekjum athygli á því sem er að gerast í íslensku hönnunar- og arkitektúrsamfélagi og leitum því stöðugt að áhugaverðu efni til að deila áfram.
Sendið okkur upplýsingar um það sem er framundan hjá ykkur á gunnthorunn@honnunarmidstod.is og við skoðum hvort það geti átt erindi í fréttabréfið okkar eða aðra miðlun Miðstöðvarinnar.
Ef þú vilt gerast áskrifandi að fréttabréfinu okkar, þá er um að gera að skrá netfangið þitt neðst á heimasíðunni.
Við hlökkum til að heyra frá ykkur og eigum von á viðburðaríku og spennandi hausti fyrir íslenska hönnun og arkitektúr.


