Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Minningarsjóður Svavars Péturs Eysteinssonar opnar fyrir umsóknir í annað sinn

11. mars 2025

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Minningarsjóð Svavars Péturs Eysteinssonar og er þetta í annað sinn sem veittur verður styrkur úr sjóðnum.

Tekið verður við umsóknum til 31. mars. Einni milljón króna verður veitt til eins verkefnis á afmælisdegi Svavars Péturs, 26. apríl og er allt skapandi fólk með skemmtilegar hugmyndir hvatt til að sækja um. 

Í minningu einstaks listamanns

Minningarsjóður Svavars Péturs var stofnaður með það að leiðarljósi að halda minningu einstaks listamanns á lofti. Svavar Pétur lést úr krabbameini 29. september árið 2022, aðeins 46 ára gamall. Svavar Pétur var best þekktur sem tónlistarmaðurinn Prins Póló. Hann var fjölhæfur og framtakssamur tónlistarmaður, hönnuður, myndlistarmaður, matvælaframleiðandi, frumkvöðull og bóndi sem veitti fjölda fólks innblástur með verkum sínum og vinnu, hugmyndauðgi, kjarki og þori. 

Úthlutun 2024

Ægir Sindri Bjarnason fékk fyrsta styrkinn úr Minningarsjóði Svavars Péturs Eysteinssonar, sem var veittur á Hammondhátíð á Djúpavogi þann 26. apríl, afmælisdegi Svavars Péturs. Ægir Sindri sótti um styrk til reksturs á tónleikarýminu R6013 við Ingólfsstræti, þar sem ólíkum tónlistarstefnum er gert hátt undir höfði. Stjórn sjóðsins studdi verkefnið með stolti enda spennandi frumkvöðlastarf með skýrri sýn um að efla grasrót tónlistarstarfs og sameina tónlistarfólk af öllum kynslóðum.

Markmið sjóðsins

Markmið sjóðsins er að styðja við listamenn og frumkvöðla sem vinna í sama anda og Svavar Pétur.  

Stjórn sjóðsins hefur unnið ötullega að fjármögnun sjóðsins á undanförnum árum, meðal annars með samstarfi við 66°Norður við gerð flíspeysuútgáfu af Haustpeysu Prinsins. Peysan var hönnuð af Svavari Pétri í samstarfi við 66°Norður. Stjórn Minningarsjóðsins stóð fyrir Hátíð hirðarinnar: Afmælistónleikum Prins Póló. Þar komu fram fjölmargir tónlistarmenn sem gáfu vinnu sína fyrir málstaðinn. Þá var myndaður Hlaupahópur Hirðarinnar þar sem nokkrir galvaskir hlauparar hafa hlaupið og safnað áheitum fyrir fyrir málstaðinn í Reykjavíkurmaraþoni. 

Sótt er um á heimasíðu Havarí, havari.is 

Stjórn sjóðsins skipa:

Berglind Häsler, stjórnarformaður

Elsa Þórey Eysteinsdóttir, framkvæmdastjóri

Benedikt Hermann Hermannsson

Björn Kristjánsson

Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir

Sækja hér um

Tengt efni

  • Fjölmennt og góðmennt var á fyrri úthlutun Hönnunarsjóðs í Grósku

  • Má bjóða þér að Uppsprettunni? Kynntu þér dagskrá DesignTalks 2025

  • Opið fyrir umsóknir í Barnamenningarsjóð

Dagsetning
11. mars 2025
Höfundur
Guðrún Edda Einarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200