Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Námskeiðið Leiðtogi í Skapandi hugsun - sérkjör í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

17. ágúst 2020

Akademias býður upp á námskeiðið Leiðtogi í skapandi hugsun. Námskeiðið er samstarfsverkefni fjölda sérfræðinga og fyrirtækja sem vilja efla hugmyndavinnu og skapandi hugsun hjá hinu opinbera, í íslensku atvinnulífi og þriðja geiranum. Skapandi hugsun (e. Design Thinking) er aðferðafræði sem var fyrst þróuð af bandaríska ráðgjafarfyrirtækinu IDEO til þess að þróa lausnir sem byggja á hönnun og frumleika. 

Leiðbeinendur námsins eru 10 - 15 talsins sem eru sérfræðingar hugmyndavinnu og hönnunarhugsun. Hver áfangi hefur á bilinu 2 – 3 leiðbeinendur sem segja frá eigin reynslu og raundæmum. Á námskeiðinu koma saman m.a. leiðbeinendur eins og Paul Bennett, sem hefur verið leiðandi í Skapandi hugsun fyrir IDEO í tvo áratugi og unnið með mörgum af stærstu fyrirtækjum heimsins, Roberto Verganti, prófessor, sem skrifaði bókina Design Driven Innovation sem vakti heimsathygli á skapandi hugsun sem aðferðafræði og Sigurður Þorsteinsson, partner hjá Design Group Italia, sem hefur leitt skapandi vinnu fyrir Bláa lónið, 3M, PepsiCo og fleiri alþjóðleg fyrirtæki og fjöldinn allur af innlendum og erlendum sérfræðingum.  

Umsjónarmaður er Svava María Atladóttir, partner hjá Future Medical Systems í San Francisco. Hún vann jafnframt í sex ár hjá IDEO í Palo Alto höfuðstöðvunum en IDEO var frumherji og hefur verið leiðandi í hönnunarhugsun alþjóðlega. Svava María hefur stýrt fjölda verkefna þar sem hönnunarhugsun hefur verið leiðandi aðferðafræði við að finna lausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir. Hún er meðhöfundur bókarinnar Discovery Design: Charting New Directions in Healthcare Improvement.

Akademias býður sérstakt verð í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur til 28. ágúst og hljóðar upp á 190.000 kr. (fullt verð er 290.000 kr.). *athugið að hægt að fá námið niðurgreitt allt að 90% hjá starfsmenntasjóðum.

Námskeiðið Leiðtogi í Skapandi hugsun snýst um að skapa þekkingu, færni og leikni til þess að stýra verkefnum innan fyrirtækja og stofnana með því að nýta aðferðafræði skapandi hugsunar við hugmyndavinnu og lausnir á vandamálum. Sérstök áhersla er lögð á að þjálfa notkun skapandi hugsunar við mismunandi aðstæður eins og t.d. við hönnun á rými, heilbrigðislausnum og vöru- og þjónustunýjungum.

Aðferðafræðin byggir á stuttum hópverkefnum, fyrirlestrum og samtölum sérfræðinga. Aðferðafræðin leggur áherslu á samskiptahæfni, lausn vandamála og greiningu tækifæra, gagnrýna- og skapandi hugsun.

Frekari upplýsingar og skráning á heimasíðu Akademias
akademias_
akademias_Nýtt nám í Hönnunarhugsun (e. Design Thinking)! https://bit.ly/3izSclf

Tengt efni

  • 23 umsóknir bárust um merkingar á ferðamannastöðum og friðlýstum svæðum

  • Menningarstyrkir í Creative Europe – vinnustofa í gerð umsókna

  • Spjaraþon - tveggja daga hugmyndasmiðja gegn textílsóun

Dagsetning
17. ágúst 2020
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Námskeið

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200