Nýr dagskrárstjóri fyrir HönnunarMars 2020

Ellen Loftsdóttir hefur verið ráðin dagskrárstjóri HönnunarMars 2020 og mun halda utanum dagskrá hátíðarinnar í samstarfi við stjórnanda HönnunarMars, Þóreyju Einarsdóttur, 6 manna valnefnd og aðra verkefnastjóra hátíðarinnar.
Ellen hefur starfað síðastliðin 12 ár við stíliseringu og listræna stjórnun fyrir íslensk og erlend fyrirtæki auk tískutímarita á borð við I-D magazine, ELLE, Glamour, Euroman og Costume. Hún var listrænn stjórnandi hjá Reykjavik Fashion Festival í 4 ár og lærði tísku PR & comunication við London Collage of Fashion. Ellen er einnig stofnandi og listrænn stjórnandi Favorite Magazine, sjálfbært tískutímarit sem selt er í yfir 20 verslunum út heim allan. Ellen hefur tekið til starfa sem dagskrárstjóri fyrir HönnunarMars 2020 og ber ábyrgð á að halda utanum dagskrá hátíðarinnar í samstarfi við stjórnanda HönnunarMars, Þóreyju Einarsdóttur, 6 manna valnefnd og aðra verkefnastjóra hátíðarinnar. Í því felst meðal annars að undirbúningur dagskrár, vinna að dagskráliðum sem Hönnunarmiðstöð framleiðir svo sem Design Diplomacy og DesignMatch. Hún mun vinna með sýnendum og þátttakendum í að tryggja sem bestu gæði í dagskránni hvað varðar staðsetningar, tímasetningar og tengingar á milli viðburða og sýninga.
