Nýr kjarasamningur tók gildi 1. maí
Nýsamþykktur kjarasamningur milli AÍ og Samtökum atvinnulífsins tók gildi 1. maí sl. Í nýjum kjarasamningi er m.a. kveðið á um styttingu vinnuvikunnar en hérna eru frekari upplýsingar.
- Virkur vinnutími miðað við fullt starf verður 35,5 stundir að meðaltali á viku (35klst. og 30mín.). Virkur vinnutími telst sá tími sem starfsmaður er við störf. Neysluhlé og hádegishlé teljast ekki til virks vinnutíma.
- Vinnutímastytting kemur einungis til framkvæmda þar sem virkur vinnutími (sá tími sem starfsmaður er við störf) er lengri en 35,5 stundir að jafnaði á viku. Neysluhlé og önnur hlé frá vinnu vegna ýmiss konar persónulegra erinda teljast ekki til virks vinnutíma í þessu sambandi.
- Framkvæmd styttingarinnar er samkomulag félagsmanna og vinnuveitanda á hverjum vinnustað fyrir sig. Hægt er að stytta vinnuvikuna t.d. með því að:
-Stytta hvern dag
-Stytta einn dag í hverri viku
-Safna upp styttingu innan árs
Við hvetjum alla félagsmenn AÍ í BHM sem vinna á almennun markaði að kynna sér vel sín réttindi og nýsamþykktan kjarasamning. Frekari upplýsingar um kjaramál arkitekta er að finna undir kjaramál hér á síðunni.