Rýnifundur í Grósku vegna skipulagssamkeppni um Akureyrarvöll

Rýnifundur um þær tillögur sem bárust í skipulagssamkeppni um Akureyrarvöll og nágrenni verður haldinn fimmtudaginn 11. júní kl. 16:30 í Fenjamýri, Grósku. Umræðan fer fram á staðnum en hægt er að fylgjast með á streymi.
Akureyrarbær efndi til samkeppninnar í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Alls bárust 15 gildar tillögur í samkeppnina.
Á fundinum mun hluti dómnefndar samkeppninnar fara yfir niðurstöður sínar og þær tillögur sem bárust í samkeppnina. Arkitektastofan ALARK arkitektar hlaut fyrstu verðlaun fyrir tillöguna Akureyrarvöllur. Í öðru sæti var tillaga marimo arkitekta, Brúum hjarta Akureyrar, og í þriðja sæti var tillaga Teikna – Teiknistofu Arkitekta, Vallartorg.
Öll velkomin!
Hlekkur á streymi hér.
